Ljósmæðraþjónusta á landsbyggðinni Mikilvægi þjónustunnar og upplifun ljósmæðra af því að starfa þar

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Breytingar hafa orðið á barneignarþjónustu víðsvegar um heiminn og er Ísland ekki þar undanskilið. Lokanir fæðingardeilda á landsbyggðinni hafa leitt til miðstýringar og nú í dag eru flestar fæðingar hérlendis á tv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heiður Sif Heiðarsdóttir
Other Authors: Sjúkrahúsinu á Akureyri
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620166
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Breytingar hafa orðið á barneignarþjónustu víðsvegar um heiminn og er Ísland ekki þar undanskilið. Lokanir fæðingardeilda á landsbyggðinni hafa leitt til miðstýringar og nú í dag eru flestar fæðingar hérlendis á tveimur stærstu sjúkrahúsum landsins eða um 76% á Landspítalanum í Reykjavík og 9,5% á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þessi þróun hefur leitt til skerðingar á þjónustu við þær konur sem kjósa að búa á landsbyggðinni og því mikilvægt að skoða hvernig ljósmæðraþjónustu á landsbyggðinni er háttað, ræða mikilvægi hennar og hvernig hægt er að varðveita hana og efla. Í þessari grein, sem byggir á lokaverkefni í ljósmóðurfræði vorið 2016, er fjallað um þjónustu ljósmæðra á landsbyggðinni með áherslu á hvert mikilvægi ljósmæðraþjónustu er og upplifun ljósmæðra af því að starfa þar, leiðbeinandi minn var Ólöf Ásta Ólafsdóttir. Tekið var viðtal við Önnu Maríu Oddsdóttur, ljósmóður á Sauðárkróki, til að kynnast starfi hennar þar og aðstæðum á Norð- urlandi.