Áhrif eldgosa á heilsu manna á Íslandi. Yfirlitsgrein

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Eldgos eru tíð á Íslandi og hafa valdið margvíslegu heilsutjóni allt frá því land byggðist. Hér er gefið yfirlit yfir áhrif eldgosa á heilsufar manna á Íslandi. Sagt er frá eldgosavirkni á Íslandi og áhrifum loftte...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gunnar Guðmundsson, Guðrún Larsen
Other Authors: Lungnadeild Landspítala, rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, læknadeild Háskóla Íslands, 2Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, 101 Reykjavík.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620041
https://doi.org/10.17992/lbl.2016.10.101
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Eldgos eru tíð á Íslandi og hafa valdið margvíslegu heilsutjóni allt frá því land byggðist. Hér er gefið yfirlit yfir áhrif eldgosa á heilsufar manna á Íslandi. Sagt er frá eldgosavirkni á Íslandi og áhrifum lofttegunda og gosösku á heilsufar manna. Eldfjallagös geta verið mjög eitruð fyrir menn ef þau eru af háum styrk en hafa í lægri styrk ertandi áhrif á slímhúðir í augum og efri öndunarvegum. Þau eru einnig ertandi fyrir húð. Öskufall er einnig ertandi fyrir slímhúðir augna og efri öndunarvegs. Mjög litlar öskuagnir geta borist í lungnablöðrur. Tekin eru dæmi um fjögur mismunandi eldgos sem orðið hafa á Íslandi og áhrif þeirra á heilsufar Íslendinga. Gosið í Lakagígum 1783-84 er það eldgos sem hefur haft mest áhrif á heilsufar Íslendinga og valdið mestu manntjóni. Þrátt fyrir tíð eldgos undanfarna áratugi hefur manntjón verið lítið síðustu 100 ár og áhrif á heilsufar einnig, þótt langtímarannsókna sé þörf í þeim efnum. Rannsóknir á heilsufarsáhrifum Eyjafjallajökulsgossins 2010 sýndu bæði aukin andleg og líkamleg einkenni, einkum hjá fólki með öndunarfærasjúkdóma. Emb- ætti landlæknis og aðrir viðbragðsaðilar hafa brugðist skjótt við tíðum eldgosum síðastliðin ár og gefið út skýrar leiðbeiningar til að draga úr hættu á heilsutjóni. Volcanic eruptions are common in Iceland and have caused health problems ever since the settlement of Iceland. Here we describe volcanic activity and the effects of volcanic gases and ash on human health in Iceland. Volcanic gases expelled during eruptions can be highly toxic for humans if their concentrations are high, irritating the mucus membranes of the eyes and upper respiratory tract at lower concentrations. They can also be very irritating to the skin. Volcanic ash is also irritating for the mucus membranes of the eyes and upper respiratory tract. The smalles particles of volcanic ash can reach the alveoli of the lungs. Described are four examples of volcanic eruptions that have ...