Lungnaígræðslur á Íslendingum

To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files. This article is open access. Inngangur: Lungnaígræðsla er valkostur við meðferð á langt gengnum lungnasjúkdómum, öðrum...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Sif Hansdóttir, Hrönn Harðardóttir, Óskar Einarsson, Stella Kemp Hrafnkelsdóttir, Gunnar Guðmundsson
Other Authors: 1 Lungnadeild Landspítala, 2 læknadeild Háskóla Íslands.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavi­kur 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/610560
https://doi.org/10.17992/lbl.2016.05.80
Description
Summary:To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files. This article is open access. Inngangur: Lungnaígræðsla er valkostur við meðferð á langt gengnum lungnasjúkdómum, öðrum en krabbameinum, þegar lífslíkur eru mjög skertar og lífsgæði léleg, þrátt fyrir bestu mögulegu meðferð. Í flestum tilvikum batna lungnapróf og heilsutengd lífsgæði mikið við lungnaígræðslu. Sýkingar og stíflumyndandi berkjungabólga, einnig kallað langvinn höfnun, eru algengustu fylgikvillarnir eftir lungnaígræðslu. Efniviður og aðferðir: Hér er sagt frá íslenskum sjúklingum sem farið hafa í lungnaígræðslu frá febrúar 1988 til janúar 2015. Gagnagrunnur var unninn afturskyggnt úr sjúkraskrám. Safnað var upplýsingum um bakgrunn sjúklinga, ígræðsluaðgerð, ónæmisbælingu og hafnanir, fylgikvilla og lifun. Niðurstöður: Alls hefur verið gerð 21 lungnaígræðsla á 20 einstaklingum en einn sjúklingur hefur tvisvar farið í aðgerð. Um var að ræða 9 konur og 11 karla og meðalaldur við ígræðslu var 45 ár (20-61 ár). Flestar aðgerðirnar hafa verið gerðar á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg. Flestir fengu ígrædd bæði lungu. Langvinn lungnateppa var algengasta ábendingin. Algengustu fylgikvillar eftir lungnaígræðslu voru hafnanir og sýkingar. Átta af 20 sjúklingum hafa fengið bráðahöfnun og helmingur sjúklinga langvinna höfnun. Alls eru 6 af 20 sjúklingum látnir, af þeim létust þrír vegna langvinnrar höfnunar á ígræddu líffæri. Miðgildi lifunar er 8,5 ár. Fimm ára lifun er 74%. Ályktanir: Lungnaígræðslur á Íslendingum eru nú framkvæmdar á Sahlgrenskasjúkrahúsinu í Gautaborg en eftirfylgni er á vegum sérhæfðra lungnalækna á Landspítala. Fylgikvillar og lifun íslenskra sjúklinga er sambærilegt við það sem gerist á stærri stofnunum. Náin samskipti og samstarf við stofnunina þar sem ígræðsla fer fram er lykilatriði. Introduction: Lung transplantation is a treatment option for end-stage lung diseases, excluding lung cancer, when life ...