Summary: | To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files. This article is open access. B-eitilfrumna. Einstofna B-eitilfrumudreyri (monoclonal B-cell lymphocytosis, MBL) er talið forstig sjúkdómsins. Sjúkdómurinn er ólæknandi en hæggengur og greinist oft fyrir tilviljun við skoðun blóðhags. Langvinnt eitilfrumuhvítblæði hefur ekki verið rannsakað á Íslandi hvað varðar nýgengi, greiningu, sjúkdómseinkenni eða hækkanir á eitilfrumutalningu í blóði fyrir greiningu. Efniviður og aðferðir: Um er að ræða afturskyggna, lýsandi rannsókn sem nær til sjúklinga sem greindust á árunum 2003-2013. Fengin voru gögn yfir sjúklinga frá Krabbameinsskrá, blóðmeinafræðideild Landspítala og Læknasetrinu í Mjódd og var skráning tilfella rakin. Sjúkraskrár voru skoðaðar með tilliti til einkenna, greininga og meðferðar. Upplýsingar um lifun fengust úr Þjóðskrá og um dánarorsakir frá landlækni. Niðurstöður: Fjöldi sjúklinga sem greindist með langvinnt eitilfrumuhvítblæði á rannsóknartímabilinu var 161 (109 karlar, 52 konur). Nýgengi mældist 4,55/100.000 en aldursstaðlað nýgengi 3,00/100.000. Meðalaldur við greiningu var 70,9 ár (35-96 ár). Krabbameinsskrá skorti upplýsingar um 28 sjúklinga (17,4%), en upphafleg greining var í 47,2% tilfella eingöngu gerð með flæðisjá. Sjúkdómseinkenni voru til staðar við greiningu hjá 67 af 151 sjúklingi (44,4%). Rúmur þriðjungur hópsins fékk lyfjameð- ferð og var meðaltími að meðferð 1,3 ár. Fimm ára lifun var um 70% en miðgildi lifunar 9,4 ár. Hækkun eitilfrumutalningar (4,0x109 /L) í blóði (0,1- 13,4 árum) fyrir greiningu fannst hjá 85 af 99 sjúklingum (85,9%). Ályktun: Nýgengi langvinns eitilfrumuhvítblæðis á Íslandi er svipað því sem þekkist á Vesturlöndum. Bæta þarf lögbundna skráningu tilfella í Krabbameinsskrá, sérstaklega þegar greining byggir á frumuflæðisjárrannsókn eingöngu. Eitilfrumuhækkun var til staðar hjá stórum hluta sjúklinga fyrir greiningu. Introduction: Chronic ...
|