Affrumað roð: Eðliseiginleikar sem styðja vefjaviðgerð

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Affrumað roð Atlantshafsþorsks (Gadus morhua) hefur verið notað undanfarin ár til meðhöndlunar á þrálátum sárum. Tíðni sykursýki hefur aukist mikið í heiminum en ein af afleiðingum hennar eru þrálát sár....

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Magnússon, Skúli, Baldursson, Baldur Tumi, Kjartansson, Hilmar, Thorlacius, Guðný Ella, Axelsson, Ívar, Rolfsson, Óttar, Petersen, Pétur Henry, Sigurjónsson, Guðmundur Fertram
Other Authors: Kerecis ehf, Landspítali, Læknadeild Háskóli Íslands, Kerfisfræðasetur Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavi­kur 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/592644
https://doi.org/10.17992/lbl.2015.12.54
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Affrumað roð Atlantshafsþorsks (Gadus morhua) hefur verið notað undanfarin ár til meðhöndlunar á þrálátum sárum. Tíðni sykursýki hefur aukist mikið í heiminum en ein af afleiðingum hennar eru þrálát sár. Markmið rannsóknanna var að kanna vefjasamrýmanleika og eiginleika sem skipta máli fyrir nýtingu roðsins til viðgerðar á líkamsvef. Efniviður og aðferðir: Bygging affrumaðs roðs var metin með smásjárskoðun. Mat á vefjasamrýmanleika græðlingsins var framkvæmd af vottaðri sérhæfðri rannsóknarstofu. Próteinhluti efnisins var kannaður með próteinrafdrætti. Seyting frumuboðanna interleukin-10 (IL-10) og IL-12p40, IL-6 og TNF-α frá einkjörnungum (monocytes) eða stórátfrumum (macrophages) í uppleystum próteinhluta efnisins var mældur með Elísu-prófi. Áhrif roðsins á nýmyndun æða in vivo var metin með æða- og þvagbelgshimnulíkani í hænufóstrum. Niðurstöður: Smásjármyndir sýna að bygging affrumaðs roðs er holótt. Efnið stóðst öll vefjasamrýmanleikapróf. Við rafdrátt próteinsýnis komu í ljós prótein á stærðarbilinu 115-130 kDa sem er einkennandi fyrir bandvef. Roðið reyndist ekki hafa marktæk áhrif á seytingu IL-10, IL-12p40, IL-6 eða TNF-αfrá einkjörnungum eða stórátfrumum. Græðlingurinn hefur marktæk örvandi áhrif á æðamyndun í æða- og þvagbelgshimnulíkani. Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að affrumað roð er skaðlaust og veldur ekki bólgusvari. Græðlingurinn inniheldur meðal annars bandvef líkt og mannshúð. Affrumað roð hefur marktæk örvandi áhrif á æðamyndun og smásjármyndir af byggingu roðsins sýna að hún sé vel til þess fallin að styðja innvöxt frumna. Samanburðarrannsókn sem hefur verið birt, tvíblind og slembiröðuð, sýndi að sár meðhöndluð með affrumuðu roði greru hraðar en sár meðhöndluð með stoðefni úr svínavef. Líklegt er að ástæða þessa bætta sáragróanda sé meðal annars vegna eiginleika roðsins sem hér er lýst. Introduction: Acellular fish skin of the Atlantic cod (Gadus morhua) is being used to treat chronic ...