Árangur og forysta í hjúkrun: viðhorf til þjónandi forystu, starfsánægju, starfstengdra þátta og gæða þjónustu á sjúkrahúsinu á Akureyri

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Bakgrunnur: Stjórnendur hafa áhrif á vinnuumhverfi, líðan starfsmanna og öryggi í heilbrigðisþjónustunni. Þjónandi forysta byggist á þeirri hugmyndafræði að leiðtogi sé fyrst og fremst þjónn sem virðir forn gildi u...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hulda Rafnsdóttir, Ragnheiður Harpa Arnardóttir, Sigrún Gunnarsdóttir
Other Authors: Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/581426
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Bakgrunnur: Stjórnendur hafa áhrif á vinnuumhverfi, líðan starfsmanna og öryggi í heilbrigðisþjónustunni. Þjónandi forysta byggist á þeirri hugmyndafræði að leiðtogi sé fyrst og fremst þjónn sem virðir forn gildi um mannúð og siðgæði og setur velferð annarra framar eigin völdum og vegsauka. Slíkt samrýmist vel hugmyndafræði hjúkrunar. Nýlegar rannsóknir gefa vísbendingar um góð áhrif þjónandi forystu í fyrirtækjum og stofnunum, einnig innan heilbrigðisþjónustunnar. Markmið: Að kanna hvort stjórnunarhættir með áherslu á þjónandi forystu væru til staðar á hjúkrunarsviðum Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), hver afstaða hjúkrunarstarfsfólks væri til starfsánægju, starfstengdra þátta og gæða þjónustu og hvort tengsl væru milli þessara þátta. Aðferð: Rannsóknin var lýsandi þversniðskönnun. Þátttakendur voru hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á SAk haustið 2011. Lagður var fyrir spurningalisti um þjónandi forystu, Servant Leadership Survey (SLS), ásamt almennum spurningum um starfsánægju, starfstengda þætti og gæði þjónustunnar, alls 54 spurningar. SLS mælir heildartölu og átta undirþætti þjónandi forystu. Niðurstöður: Svörun var 57,5% (149 svör). Heildartala SLS var 4,3 (± 0,62) og undirþættirnir mældust á bilinu 3,99 til 4,6 (staðalfrávik 0,78 til 1,04), en hæsta mögulega gildi SLS er 6. Undirþátturinn samfélagsleg ábyrgð mældist hæstur (4,6 ± 0,81). Langflestir þátttakendur voru ánægðir í starfi (96%) og 95,3% töldu veitta þjónustu góða. Starfsánægja hafði sterkustu fylgni við undirþáttinn eflingu (r = 0,48; p<0,01). Fylgni var milli eflingar og allra starfstengdra þátta (r = 0,18-0,44; p<0,05). Nokkur fylgni var á milli þjónandi forystu og öryggis skjólstæðinga. Þrír starfstengdir þættir (hlutdeild í ákvörðunartöku, fær viðurkenningu/hrós og upplýsingaflæði er gott) útskýrðu 54% af heildargildi þjónandi forystu (p<0,001). Ályktanir: Stjórnunarhættir þjónandi forystu eru til staðar á hjúkrunarsviðum SAk að mati þátttakenda. ...