Þróun og mat á réttmæti mælitækis á meðvitaðri sjálfstjórnun ungmenna

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Meðvituð sjálfstjórnun vísar til getu fólks til að setja sér markmið og nota árangursríkar leiðir til að ná markmiðum sínum. Rannsóknir á slíkri getu benda til mikilvægis þess að hún sé til staðar á unglingsárum en...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristján Ketill Stefánsson, Steinunn Gestsdóttir, Sigurgrímur Skúlason
Other Authors: Sáfræðideild Háskóli Íslands, Námsmatsstofnun
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/556035
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Meðvituð sjálfstjórnun vísar til getu fólks til að setja sér markmið og nota árangursríkar leiðir til að ná markmiðum sínum. Rannsóknir á slíkri getu benda til mikilvægis þess að hún sé til staðar á unglingsárum en ekki liggja fyrir nægilega réttmæt og áreiðanleg mælitæki sem henta unglingum. Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt. Í fyrsta lagi var athugað hvort hægt væri að bæta áreiðanleika sjálfstjórnunarmælitækisins SOC með því að setja svarmöguleika mælitækisins fram á Likert kvarða í stað tvíkosta svarmöguleika. Í öðru lagi var kannað hvort breytt framsetning mælitækisins yrði til þess að unnt væri að staðfesta formgerð þess og þar með hugtakaréttmæti við íslenskar aðstæður. Undirbúningsmæling með háskólanemum ásamt undirbúningsmælingu og rýnihópsviðtali við unglinga bentu til þess að Likert framsetning gæfi réttmætari niðurstöður en tvíkosta framsetning líkt og notuð hefur verið með fullorðnum þátttakendum. Staðfestandi þáttagreining á gögnum frá 539 nemendum í 9. bekk (46% stúlkur, meðalaldur 14,3 ár) leiddi í ljós að þríþátta formgerð SOC mælitækisins kom ekki fram. Einsþátta líkan féll aftur á móti vel að gögnunum líkt og sýnt hefur verið fram á með bandarískum ungmennum. Þessar niðurstöður benda til þess að einsþátta útgáfa SOC mælitækisins með Likert svarmöguleikum gefi áreiðanlega og réttmæta mælingu á sjálfstjórnun unglinga við upphaf og lok 9. bekkjar á Íslandi og gefi þar af leiðandi möguleika á samanburðarhæfum niðurstöðum við niðurstöður mælinga á bandarískum unglingum. Intentional self-regulation refers to people’s ability to set goals and find effective means to achieve their goals. The SOC (selection, optimization, compensation) measure has been widely used in measuring intentional self-regulation among adults. Research has indicated the importance of SOC abilities during adolescence but a reliable and valid SOC measure for use with adolescents has not been available. The goal of this research was ...