Reynsla ungra kvenna af kynsjúkdómamóttöku: Þörfin fyrir öryggi og vingjarnlegt viðmót

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Rannsóknir hafa sýnt margvíslegar hindranir sem ungt fólk verður fyrir í sambandi við aðgengi og notkun kynheilbrigðisþjónustu. Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi þar sem reynsla ung...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sóley S. Bender, Jenný Guðmundsdóttir
Other Authors: Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala , Göngudeild kynsjúkdóma Landspítalans
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/554405
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Rannsóknir hafa sýnt margvíslegar hindranir sem ungt fólk verður fyrir í sambandi við aðgengi og notkun kynheilbrigðisþjónustu. Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi þar sem reynsla ungra kvenna af kynsjúkdómamóttöku er skoðuð með eigindlegri aðferð. Aðferð: Rannsóknin byggist á túlkandi fyrirbærafræði. Tekin voru eigindleg viðtöl við sjö ungar konur á aldrinum 17-23 ára. Þær voru valdar af handahófi úr hópi 34 einstaklinga sem mættu á kynsjúkdómamóttöku. Viðtölin voru skráð frá orði til orðs. Við gagnagreiningu var stuðst við túlkunarkenningu Ricoeur. Niðurstöður: Í ljós komu þrjú meginþemu: feimnismál, spenna og léttir en að baki bjó skömmin. Niðurstöður sýndu að ungu konurnar lifðu í samfélagi þar sem kynsjúkdómar eru feimnismál. Þær fundu fyrir innri spennu í sambandi við að nálgast þjónustuna og í tengslum við sjálfa heimsóknina en voru fegnar því hversu vel móttakan var falin og að mæta skilningsríku og fordómalausu fagfólki. Þær höfðu mikla þörf fyrir að geta farið í gegnum þjónustuferlið með reisn þar sem tekið væri tillit til þarfa þeirra. Áður en þær komu á móttökuna og í gegnum þjónustuferlið blundaði með þeim sá ótti að einhver kæmist að því að þær hefðu farið þangað. Óttinn við skömmina lá í loftinu. Ályktanir: Konurnar fundu fyrir spennu varðandi heimsóknina og voru að mörgu leyti auðsæranlegar. Það var þeim mikils virði að njóta virðingar í gegnum þjónustuferlið. Niðurstöður benda til að auðvelda þurfi aðgengi að þjónustunni og huga að gæðum hennar þannig að þjónustuferlið reynist jákvætt Purpose: Studies have shown that young people experience numerous hindrances regarding the access to and use of sexual and reproductive health services. This study is the first of its kind in Iceland which is exploring, with a qualitative method, the lived experience of young women of a sexually transmitted infections (STI) clinic. Method: The study is a hermeneutic phenomenological study. Seven ...