Árangur hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi sem veitt er á netinu

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Svefnleysi er útbreitt heilsufarsvandamál sem hefur alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Neysla svefnlyfja er mun meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum, þrátt fyr...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðlaug Friðgeirsdóttir, Gunnar Jóhannsson, Steindór Ellertsson, Erla Björnsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landspítalinn
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavi­kur 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/550164
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Svefnleysi er útbreitt heilsufarsvandamál sem hefur alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Neysla svefnlyfja er mun meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum, þrátt fyrir að mælt sé með hugrænni atferlismeðferð (HAM-S) sem fyrsta úrræði við langvarandi svefnleysi. Til að koma til móts við fleiri sem glíma við svefnvanda var netmeðferð við svefnleysi sett á laggirnar á betrisvefn.is. Tilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa árangri netmeðferðarinnar. Efniviður og aðferðir: Alls 175 þátttakendur hófu 6 vikna meðferð á tímabilinu ágúst 2013 til apríl 2014 en þar af voru 50 (29%) sem ekki luku meðferð svo eftir var úrtak 125 þátttakenda. Meðalaldur var 46 ár (18-79 ára). Meðferðin er byggð á gagnreyndri hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Þátttakendur skráðu svefn sinn og var árangur metinn út frá svefnnýtingu, tíma sem tekur að sofna og vökutíma eftir að hafa sofnað, að lokinni 6 vikna meðferð og 6 vikna eftirfylgd. Niðurstöður: Marktækar breytingar til hins betra urðu á öllum útkomumælingum, nema heildarsvefntíma sem styttist um 5% samkvæmt niðurstöðum svefnskráningar. Breytingarnar voru enn til staðar 6 vikum eftir lok meðferðar og heildarsvefntími lengdist. Neysla svefnlyfja minnkaði marktækt. Meðferðin virðist henta þátttakendum vel og rúmlega 94% þeirra myndu mæla með henni. Ályktun: Netmeðferð Betri Svefns lofar góðu og árangur er í samræmi við erlendar rannsóknir netmeðferða gegn svefnleysi. Með auknu framboði er vonast til að fyrsta úrræði gegn svefnvanda hér á landi verði HAM-S líkt og víða annars staðar. Þannig má hugsanlega draga úr hinni miklu svefnlyfjanotkun Íslendinga, álagi á heilsugæslustöðvar og þeim kostnaði sem svefnvanda fylgir. Introduction: Insomnia is a common health problem with serious mental and physical consequences as well as increased economical costs. The use of hypnotics in Iceland is immense in spite of cognitive behavioral therapy for ...