Læknadagar 2009 [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nú líður að Læknadögum 2009 og birtist dagskráin í heild sinni í þessu tölublaði Læknablaðsins. Þetta er í 14. sinn sem þingið er haldið og langar mig til að nota þetta tækifæri og auglýsa eftir góðri en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arna Guðmundsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/49738
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nú líður að Læknadögum 2009 og birtist dagskráin í heild sinni í þessu tölublaði Læknablaðsins. Þetta er í 14. sinn sem þingið er haldið og langar mig til að nota þetta tækifæri og auglýsa eftir góðri enskri þýðingu á orðinu Læknadagar. Hér verður farið stuttlega yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið milli ára og hvað er í sjónmáli. Fyrst ber að nefna breyttan þingstað. Eins og menn muna voru Læknadagar haldnir á Radisson SAS hóteli í janúar 2008. Þar sáu ráðstefnugestir illa á skjái í fyrirlestrasölum og sýningarsvæði þótti dimmt og úr alfaraleið. Nú verður snúið aftur á Hilton Reykjavík Nordica hótel þó að á því húsnæði séu ýmsir vankantar. Undirbúningsnefndin hafði hlakkað mikið til að slá um sig í nýju Tónlistar- og ráðstefnuhúsi árið 2010 en verður líklegast að bíða aðeins lengur eftir þeirri ánægju, af augljósum ástæðum.