Öndunar- og meltingarfæraeinkenni hjá 7-10 ára börnum í Reykjavík

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Astmi og nefbólgur eru algengir sjúkdómar sem orsakast oft af ofnæmi, en verða þó ekki nærri alltaf skýrðir með því. Vélindabakflæði er einnig algengt vandamál sem er stundum talið valda bæði bólgum í ne...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Michael Clausen, Þórarinn Gíslason, Svala Aðalsteinsdóttir, Davíð Gíslason
Other Authors: Læknadeild, Háskóli Íslands, Lyflækningadeild Landspítalans, Barnaspítali Hringsins
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavi­kur 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/346483
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Astmi og nefbólgur eru algengir sjúkdómar sem orsakast oft af ofnæmi, en verða þó ekki nærri alltaf skýrðir með því. Vélindabakflæði er einnig algengt vandamál sem er stundum talið valda bæði bólgum í nefi og astma. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvert væri samband einkenna um vélindabakflæði og öndunarfæraeinkenna hjá 7-10 ára börnum í Reykjavík. Efniviður og aðferðir: Árin 2008-2009 voru sendir út 2895 stuttir spurningalistar til 7-10 ára barna í grunnskólum Reykjavíkur til þess að skima fyrir fæðuofnæmi, sem hluti af fjölþjóðarannsókn á fæðuofnæmi. Svör bárust fyrir 2346 börn (81%). Úr þeim hópi voru 176 börn (7,5%) valin sem svöruðu spurningu um óþægindi af mat játandi og 317 börn sem svöruðu spurningunni neitandi. Þessir hópar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um einkenni frá nefi, berkjum og um bakflæði. Borin var saman fylgni einkenna frá nefi og berkjum annars vegar og bakflæði hins vegar. Niðurstöður: Sterk fylgni var milli surgs í brjósti á síðasta ári og uppkasta (p<0,001), ógleði (p<0,001) og brjóstsviða (p<0,001) á síðustu 6 mánuðum. Einnig var fylgni milli astma og ógleði (p<0,05), og astma og brjóstsviða (p<0,001) og milli nefeinkenna annars vegar og uppkasta (p<0,01), ógleði (p<0,01), brjóstsviða (p<0,01) og súrs bragðs í munni (p<0,001) hins vegar. Ályktun: Rannsóknin sýnir sterkt samband milli bakflæðiseinkenna annars vegar og nefeinkenna, surgs og astma hins vegar þó að enn sé óljóst hvers eðlis þetta samband er. Hafa ber bakflæðissjúkdóm í huga ef astmi og nefeinkenni skýrast ekki af öðrum ástæðum. Introduction: Asthma and rhinitis are common diseases in children often but not always caused by allergy. Gastroesophageal reflux is also prevalent in children and relationship with respiratory symptoms has been suggested. The aim of this study was to investigate this relationship in schoolchildren. Material and methods: As a part of multi-centre ...