Sýruslit, þáttur í tannsliti íslenskra landnámsmanna

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn slendingasögur eru mikilvægar heimildir um lífshætti á Íslandi og mögulega einnig á hinum Norðurlöndum fyrir 1000 árum. Mikið tannslit einkenndi tennur fornmanna um heim allan sem talið er stafa af neyslu grófrar o...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Svend Richter, Sigfús Þór Elíasson
Other Authors: Tannlæknadeild Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/344270
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn slendingasögur eru mikilvægar heimildir um lífshætti á Íslandi og mögulega einnig á hinum Norðurlöndum fyrir 1000 árum. Mikið tannslit einkenndi tennur fornmanna um heim allan sem talið er stafa af neyslu grófrar og harðrar fæðu. Litið hefur verið á að sýruslit sé nýlegt vandamál, en skilningur er að vakna á að það hafi ávallt verið til staðar í einhverju mæli. Höfuðkúpur frá Skeljastöðum í Þjórsárdal, sem taldar eru eldri en frá 1104, voru skoðaðar m.t.t tannslits. Reynt var að meta ástæður slitsins, slitmunstur og hversu líklega það gæti stafað af neyslu matar og drykkjar. Gerð var tölvuleit að matar- og drykkjarvenjum skráðum í Íslendingasögum og öðrum sagnaritum. Fjörutíu og níu kúpur með 915 tönnum voru til ráðstöfunar í rannsókn þessari. Tvær aðferðir voru notaðar til að meta tannslit og sjö til aldursgreiningar. Tannslit var mikið í öllum aldursflokkum, en meira í þeim eldri og mest var slitið á fyrsta jaxli. Ekki var munur milli kynja. Síruslit hafði öll merki um slit af völdum grófrar, harðrar fæðu. Einnig mátti sjá slit sem líkist mjög sýrusliti meðal ungmenna sem í dag drekka gosdrykki og önnur súr drykkjarföng óhóflega. Heimildir geta að mysa sem gerjuð var í mjólkursýru og notuð til súrsunar matvæla, hafi verið blönduð vatni og verið megin svalardrykkur þess tíma og drukkinn allt fram á tuttugustu öld. Rannsóknir sýna að mysa hefur mikil sýruslítandi áhrif á tennur. Líkur eru á að súrir drykkir og matur ásamt neyslu á grófmeti hafi verið einn af aðalorsakavöldum tannslits Íslendinga til forna. The Icelandic Sagas are an important source of information on the way of life in Iceland and possibly other Nordic countries 1000 years ago. Archaeological human skull material worldwide has revealed extensive tooth wear with the main cause believed to be consumption of course, rough diet. Dental erosion is generally thought of as a modern phenomenon, but there is emerging evidence that the condition has always been ...