Nálaskiptiþjónusta er kostnaðarvirk forvörn gegn HIV á Íslandi

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Árið 2007 varð snögg aukning á HIV-smitum meðal sprautufíkla á Íslandi. Frá 2007-2011 greindust 34 HIV-nýsmit meðal sprautufíkla samanborið við fjögur nýsmit árin 2002-2006. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvor...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elías Sæbjörn Eyþórsson, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, Magnús Gottfreðsson
Other Authors: Læknadeild Háskóla Íslands, Hagfræðideild Háskóla Íslands, Smitsjúkdómadeild Landspítala Reykjavík Ísland.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/325006
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Árið 2007 varð snögg aukning á HIV-smitum meðal sprautufíkla á Íslandi. Frá 2007-2011 greindust 34 HIV-nýsmit meðal sprautufíkla samanborið við fjögur nýsmit árin 2002-2006. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort nálaskiptiþjónusta væri kostnaðarhagkvæm forvörn gegn HIV meðal sprautufíkla á Íslandi. Efniviður og aðferðir: Kostnaðarnytjagreining var gerð út frá samfélagslegu sjónarhorni. Verðlagsár greiningarinnar er 2011 og við núvirðingu var miðað við 3% afvöxtunarstuðul. Borið var saman 10 ára tímabil, 2011-2020 með og án nálaskiptiþjónustu. Kostnaðarnytjahlutfall var reiknað út frá kostnaði á hvert lífsgæðavegið lífár. Næmisgreining var gerð á öllum helstu forsendum. Niðurstöður: Heildarkostnaður samfélagsins vegna HIV-sýkinga sprautufíkla á tímabilinu 2011-2020 var áætlaður 914.369.621 kr. án nálaskiptiþjónustu en 947.653.758 kr með nálaskiptiþjónustu. Umframkostnaður samfélagsins vegna nálaskiptiþjónustu á tímabilinu er því 33.284.137 kr. Nyt samfélagsins af nálaskiptiþjónustu eru 7,39 lífsgæðavegin lífár. Jafnframt kemur nálaskiptiþjónusta í veg fyrir 4-5 HIV-sýkingar á tímabilinu. Kostnaðarnytjahlutfallið af því að veita nálaskiptiþjónustu í stað engrar er 4.506.720 kr. Ályktanir: Samkvæmt viðmiði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er aðgerð kostnaðarvirk ef hún skilar einu lífsgæðavegnu lífári fyrir minna en þrefalda verga landsframleiðslu á einstakling á ári. Árið 2011 var þreföld árleg verg landsframleiðsla á íbúa á Íslandi 15.329.757 kr. Næmisgreining á helstu forsendum skilaði kostnaði innan þessara marka. Nálaskiptiþjónusta er kostnaðarvirk forvörn gegn útbreiðslu HIV meðal sprautufíkla á Íslandi. Objective: In 2007 there was a sudden increase in HIV cases among intravenous drug users (IDUs) in Iceland. In 2007 - 2011 there were 34 new HIV cases among IDUs compared to four in the previous four year period. The purpose of this study was to assess whether needle exchange programs (NEPs) were cost-effective in ...