Mikilvægi kerfisnálgunar og kerfisgreiningar í frammistöðustjórnun og tengsl stjórnunar við viðskiptatengdan árangur

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Atferlisstjórnun á vinnustöðum (organizational behavior management) er ung grein sem er undirsvið hagnýtrar atferlisgreiningar (applied behavior analysis). Fagmenn á sviðinu nota þekkingu um lögmál hegðunar og nýta...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Jóhanna Ella Jónsdóttir, Zuilma Gabriela Sigurðardóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/311916
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Atferlisstjórnun á vinnustöðum (organizational behavior management) er ung grein sem er undirsvið hagnýtrar atferlisgreiningar (applied behavior analysis). Fagmenn á sviðinu nota þekkingu um lögmál hegðunar og nýta þá þekkingu við greiningu og mótun vinnutengdrar hegðunar. Rannsóknir á frammistöðustjórnun (performance management) eins og hún er skilgreind innan atferlisgreiningar hafa verið af afar skornum skammti á Íslandi. Hér er greint frá þremur rannsóknum á frammistöðustjórnun í íslenskum fyrirtækum þar sem aðferðir atferlisstjórnunar á borð við markmiðasetningu, endurgjöf og jákvæða styrkingu æskilegrar hegðunar voru nýttar með góðum árangri. Að lokinni umræðu um rannsóknirnar færa höfundar rök fyrir mikilvægi þess að rannsóknir og frammistöðugreiningar séu árangursmiðaðar og innihaldi kerfisnálgun (systems approach). Þeirri nálgun var ekki beitt í fyrrnefndum rannsóknum. Bent verður á mikilvægi þess að setja frammistöðu einstakra starfsmanna, hópa eða deilda í samhengi við heildina og hlutverk vinnustaðarins svo frammistaðan sem reynt er að hafa áhrif á, til dæmis með hönnun inngripa, sé í raun mikilvæg eða virðisaukandi fyrir vinnustaðinn. --- Organizational Behavior Management is a field that grew from behavior analysis and is a rather young field. Professionals and academics build on the knowledge that has accumulated from years of research on the laws of behavior and apply them to workplaces in the form of perfomance management and the shaping of other work-related behaviors. Research on performance management as it is defined in the field of behavior analysis is not very common in Iceland. In this article, three similar studies on performance that used similar intervention methods (e.g., goal setting, feedback, and positive reinforcement of target behaviors) will be discussed. The authors will then emphasize the importance of using systems analysis in performance management research and application and that ...