Faraldsfræði stunguóhappa á Landspítalanum á árunum 1986-2011. Lýsandi rannsókn

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn. Verði heilbrigðisstarfsmenn fyrir stunguóhappi, líkamsvessamengun eða biti (óhappi) tengt smitandi sjúklingi (áhættuóhappi) geta þeir smitast af lifrarbólguveiru B (HBV), lifrarbólguveiru C (HCV) eða HIV. Smithætt...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ásdís Elfarsdóttir Jelle, Elín J G Hafsteinsdóttir, Ólafur Guðlaugsson, Már Kristjánsson
Other Authors: Gæða- og sýkingavarnadeild, lyflækningasvið Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/310868
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn. Verði heilbrigðisstarfsmenn fyrir stunguóhappi, líkamsvessamengun eða biti (óhappi) tengt smitandi sjúklingi (áhættuóhappi) geta þeir smitast af lifrarbólguveiru B (HBV), lifrarbólguveiru C (HCV) eða HIV. Smithættan er mest í tengslum við stunguóhöpp af völdum holra nála. Markmið rannsóknarinnar var að lýsa faraldsfræði tilkynntra óhappa starfsmanna Landspítala og greina vanskráningu þeirra. Afturskyggn lýsandi rannsókn.Unnið var úr tilkynningum óhappa frá starfsmönnum Landspítala tímabilið 1986-2011. Hlutfall óhappa var reiknað eftir aldri og starfsstéttum og dreifing óhappa eftir tildrögum og deildum fundin. Hlutfall áhættuóhappa var fundið og hlutfall starfsmanna sem voru bólusettir gegn HBV þegar óhapp varð. Hlutfall vanskráðra óhappa var áætlað fyrir tímabilið 01.01.2005-31.12.2011. Á tímabilinu urðu að minnsta kosti 4089 óhöpp en 3587 þeirra voru tilkynnt og blóðrannsókn framkvæmd hjá 2578 starfsmönnum. Nálægt þriðjungur óhappa tengdist því að ekki var unnið samkvæmt grundvallarsmitgát og holar nálar tengdust stunguóhöppum í 54,7% tilvika. Hlutfall tilkynninga frá læknum og læknanemum var lágt, eða 17,9%. Á tímabilinu reyndust 50,3% starfsmanna bólusettir gegn HBV þegar óhapp varð. Áhættuóhöpp voru 2,6% tilkynntra óhappa, oftast tengd sjúklingi með HCV. Tveir starfsmenn smituðust af HCV á tímabilinu. Áætluð vanskráning óhappa reyndist 28,0% á árunum 2005-2011. Þar sem mörg óhöpp tengjast röngum vinnubrögðum má vænta þess að fræðsla um grundvallarsmitgát og rétta umgengni við beitta og oddhvassa hluti fækki óhöppum. Þar sem holar nálar tengdust rúmlega helmingi stunguóhappa má vænta þess að innleiðing öryggisnála og öryggishluta fækki stunguóhöppum tengdum holum nálum. Hvetja þarf enn frekar til HBV-bólusetningar og tilkynninga á óhöppum. --- Needlesticks, bodyfluid exposure and bites (incident) put healthcare workers (HCWs) at risk of hepatitis B, C and HIV particularly if patients are infected (high risk incident). ...