Þekking og viðhorf ljósmæðra á fósturskimum

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Erlendar rannsóknir gefa til kynna að þekkingu fagfólks á fósturskimun sé ábótavant. Viðfangsefnið hefur ekki verið rannsakað hér á landi en er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að þróa og bæta þjónustu við verðand...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigrún Ingvarsdóttir, Helga Gottfreðsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir
Other Authors: Kvennadeild Landspítala, Hjúkrunarfræðideild Háskóli Íslands, Landlæknir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/305409
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Erlendar rannsóknir gefa til kynna að þekkingu fagfólks á fósturskimun sé ábótavant. Viðfangsefnið hefur ekki verið rannsakað hér á landi en er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að þróa og bæta þjónustu við verðandi foreldra á þessu sviði. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna þekkingu og viðhorf fagfólks sem vinnur með barnshafandi konum á meðgöngu til fósturskimana og fósturgreiningar. Notuð var megindleg aðferð til að nálgast viðfangsefnið og byggt á lýsandi sniði. Í þýði voru allar ljósmæður,heimilislæknar og fæðinga- og kvensjúkdómalæknar sem sinna meðgönguvernd á Íslandi. Alls náðirannsóknin til 88 ljósmæðra, 173 heimilislækna og 36 fæðinga- og kvensjúkdómalækna.Einungis verður fjallað um svör ljósmæðra í þessari grein. Almennt var viðhorf ljósmæðranna til fósturskimana jákvætt og töldu þær að upplýsa ætti allar barnshafandi konurum möguleikann á fósturskimun snemmaá meðgöngu. Þekking ljósmæðranna á viðmiðunarmörkum og líkum á frávikum var ábótavant en um 60% þeirra hafði þekkingu á jákvæðum og neikvæðum niðurstöðum úr skimprófum. Um 60% ljósmæðranna fannst þekking sín varðandi fósturskimun vera fullnægjandi. Framkom að langflestar ljósmæðranna (90%) myndu þiggja meiri fræðslu um fósturskimun stæði hún til boða. Niðurstöðurnar benda á mikilvægi þess að bjóða fagfólki frekari fræðslu um fósturskimun og samræmast niðurstöðurnar að hluta tilerlendum rannsóknum. --- Some evidence indicates that professionals knowledge of prenatal screening is deficient. The subject has not been studied previously in Iceland although an important topic so that services for expectant parents can be developed and improved further. The purpose of this study was to examine the knowledge and attitude of health professionals who provide care to pregnant women on this topic. A quantitative method was used to approach the subject, based on a descriptive design. The population included all midwives, General Practitioners and obstetricians & ...