Áhrif 6 mánaða fjölþættrar þjálfunar á hreyfigetu, vöðvakraft, þol og líkamsþyngdarstuðul eldri einstaklinga. - Eru áhrif þjálfunar sambærileg hjá konum og körlum?

Góð hreyfigeta hefur umtalsverð áhrif á sjálfstæði og vellíðan eldra fólks. Slök hreyfigeta getur aftur á móti skert athafnir daglegs lífs. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða áhrif 6 mánaða þjálfunar og íhlutunar á hreyfigetu karla og kvenna, hvort þjálfunin hefði ólík áhrif á kynin og hver ár...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Janus Gudlaugsson, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason, Anna Sigríður Ólafsdóttir, Pálmi V Jónsson, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Erlingur Jóhannsson
Other Authors: Rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræði, menntavísindasvið Háskóla Íslands, Hjartavernd, Læknadeild Háskóla Íslands, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302841
Description
Summary:Góð hreyfigeta hefur umtalsverð áhrif á sjálfstæði og vellíðan eldra fólks. Slök hreyfigeta getur aftur á móti skert athafnir daglegs lífs. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða áhrif 6 mánaða þjálfunar og íhlutunar á hreyfigetu karla og kvenna, hvort þjálfunin hefði ólík áhrif á kynin og hver árangur þjálfunarinnar væri 6 og 12 mánuðum eftir að henni lauk. Rannsóknin var gerð á 117 einstaklingum á aldrinum 71–90 ára sem höfðu tekið þátt í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Snið rannsóknarinnar var víxlað með handahófskenndu vali í tvo hópa. Rannsóknin var gerð á þremur 6 mánaða tímabilum að loknum grunnmælingum. Sex mánaða þjálfun var þreytt af þjálfunarhópi (hópi 1) á fyrsta tímabili meðan seinni þjálfunarhópur (hópur 2) var til viðmiðunar. Hópur 2 tók síðan þátt í sams konar þjálfun á öðru tímabili en formleg þjálfun rannsóknaraðila var ekki lengur til staðar fyrir hóp 1. Sex mánuðum eftir að þjálfun hjá hópi 2 var lokið voru mælingar endurteknar í fjórða skiptið. Eftir 6 mánaða íhlutun varð 32% bæting á daglegri hreyfingu karla (p<0,001) og 39% hjá konum (p<0,001). Á hreyfigetu karla varð um 5% bæting (p<0,01) og 7% hjá konum (p<0,001). Fótkraftur karla jókst um 8% (p<0,001) og kvenna um 13% (p<0,001). Bæði karlar og konur bættu hreyfijafnvægi um 10% (p<0,001), gönguvegalengd jókst hjá báðum kynjum um 5–6% (p<0,001) og líkamsþyngdarstuðull kynjanna lækkaði um tæplega 2% (p<0,001). Enginn kynjamunur var af áhrifum þjálfunar. Heildaráhrif þjálfunar á hreyfigetu og hreyfijafnvægi héldust í allt að 12 mánuði eftir að íhlutun lauk. Fjölþætt þjálfun hefur jákvæð áhrif á hreyfigetu eldri einstaklinga, kynin bregðast á sambærilegan hátt við þjálfun og varðveita áunnar breytingar í hreyfigetu í allt að 12 mánuði. Rannsóknin bendir eindregið til þess að hófleg kerfisbundin þjálfun fyrir þennan aldurshóp ætti að vera hluti af hefðbundinni heilsugæslu aldraðra. Good functional performance in elderly people greatly improves their changes of independence and well-being. Conversely, bad ...