Heyrnataugaslíðursæxli á Íslandi í 30 ár (1979 - 2009)

Heyrnartaugaslíðursæxli (acoustic neuroma (AN)) er æxli í 8. heilataug og á uppruna sinn frá taugaslíðursfrumum. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna nýgengið tímabilið 1979-2009 og varpa ljósi á faraldsfræðilega þætti er snúa að greiningu og meðferð. Rannsóknin var afturskyggn og náði til þeirra s...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þorsteinn H Guðmundsson, Hannes Petersen
Other Authors: Lífvísindasetur í Læknagarði, Háskóli Íslands, háls-, nef- og eyrnadeild Landspítalans
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302812
Description
Summary:Heyrnartaugaslíðursæxli (acoustic neuroma (AN)) er æxli í 8. heilataug og á uppruna sinn frá taugaslíðursfrumum. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna nýgengið tímabilið 1979-2009 og varpa ljósi á faraldsfræðilega þætti er snúa að greiningu og meðferð. Rannsóknin var afturskyggn og náði til þeirra sem greinst höfðu árin 1979-2009. Gögnum frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ), Sjúkratryggingum Íslands (SÍ), háls-, nef- og eyrnadeild og heila- og taugaskurðdeild Landspítala (LSH) var safnað saman og athugaðir voru faraldsfræðilegir þættir sjúklingahópsins. Nýgengi heyrnartaugaslíðursæxla 1979-2009 er 1,24/100.000/ári og fer vaxandi. 10% æxla eru greind fyrir tilviljun, flest á síðasta þriðjungi tímabilsins, en á því tímabili eru æxlin minni við greiningu, það er fleiri meðalstór æxli finnast en færri stór og risastór. Helstu einkenni sjúklinga eru heyrnarskerðing (69%), jafnvægisleysi og/eða svimi (47%) og suð í eyrum (43%). 47 einstaklingar fóru í skurðaðgerð, 16 fengu gammahnífsgeislun og 30 eru undir eftirliti. Fylgikvillar aðgerðar, með tilliti til heyrnar og andlitslömunar, voru skráðir í 39 tilfellum. Heyrn-ar-leysi á aðgerðareyra var 69% (n=27) og 44% (n=17) hlutu óafturkræfa and-lits-lömun. Meðaleftirfylgni einstaklinga í eftirliti voru 3,5 ár og uxu 17% æxlanna. Nýgengi heyrnartaugaslíðursæxla á Íslandi er svipað og á hinum Norðurlöndunum. Tilfellum fer fjölgandi og fleiri æxli greinast fyrir tilviljun sem meðal annars má þakka segulómtækninni. Ef æxli eru smá er eftirlit raunhæfur kostur þar sem lágt hlutfall æxla stækkar innan nokkurra ára. Stærri æxli eru meðhöndluð með aðgerð eða gammahnífsgeislun en yfir helmingur aðgerðarsjúklinga missir heyrn eftir aðgerð. Acoustic neuroma (AN) is a tumor of the 8th cranial nerve. The goal of this study was to find the incidence of AN in Iceland from 1979 - 2009 as well as investigate other epidemiological factors. The group of patients with the AN diagnosis was gathered retrospectively through medical records. We looked at several epidemiological factors ...