Lítil nýrnafrumukrabbamein og fjarmeinvörp

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Inngangur: Horfur lítilla nýrnafrumukrabbameina eru almennt taldar góðar og mælt er með hlutabrottnámi ef æxli eru undir 4 cm. Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka tíðni fjarmeinvarpa frá litlum n...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Pétur Sólmar Guðjónsson, Elín Maríusdóttir, Helga Björk Pálsdóttir, Guðmundur Vikar Einarsson, Eiríkur Jónsson, Vigdís Pétursdóttir, Sverrir Harðarson, Martin Ingi Sigurðsson, Tómas Guðbjartsson
Other Authors: Landspítali, University of Iceland, Iceland.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
TNM
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302494
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Inngangur: Horfur lítilla nýrnafrumukrabbameina eru almennt taldar góðar og mælt er með hlutabrottnámi ef æxli eru undir 4 cm. Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka tíðni fjarmeinvarpa frá litlum nýrnafrumukrabbameinum en þau hafa ekki verið rannsökuð áður hér á landi. Efniviður og aðferðir: Af 1102 sjúklingum sem greindust með nýrnafrumukrabbamein á tímabilinu 1971-2010 var litið sérstaklega á 257 æxli ≤4 cm og sjúklingar með meinvörp við greiningu bornir saman við sjúklinga án meinvarpa. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og vefjagerð, TNM-stig og sjúkdómasértæk lifun var borin saman í hópunum. Niðurstöður: Hlutfall lítilla nýrnafrumukrabbamein hækkaði úr 9% fyrsta áratuginn í 33% þann síðasta (p<0,001) á sama tíma og hlutfall tilviljanagreiningar jókst úr 14% í 39%. Alls greindust 25 af 257 sjúklingum (10%) með lítil nýrnafrumukrabbamein með fjarmeinvörp, oftast í lungum og beinum. Sjúklingar með meinvörp voru 1,9 árum eldri, æxlin 0,2 cm stærri og oftar staðsett í hægra nýra. Vefjagerð var sambærileg í báðum hópum en æxli greindust síður fyrir tilviljun hjá sjúklingum með meinvörp, blóðrauði þeirra var lægri og bæði Fuhrman-gráða og T-stig hærra. Fimm ára lifun sjúklinga með meinvörp var 7% borið saman við 94% hjá viðmiðunarhópi (p<0,001). Ályktun: Við greiningu eru 10% sjúklinga með lítil nýrnafrumukrabbamein með fjarmeinvörp. Þetta er óvenju hátt hlutfall en í flestum öðrum rannsóknum hefur aðeins verið litið á sjúklinga sem gengist hafa undir skurðaðgerð. Sjúklingar með meinvörp eru marktækt eldri, greinast oftar með einkenni sjúkdómsins, hafa stærri frumæxli og verri lifun. Lítil nýrnafrumukrabbamein geta því verið útbreiddur sjúkdómur við greiningu og verður að taka alvarlega. The incidence of renal cell carcinoma (RCC) is rising in part due to small tumors (≤4cm) detected incidentally with abdominal imaging. Survival for small RCCs has been regarded as favorable and guidelines recommend ...