Garnasmokkun hjá börnum á Íslandi.

Garnasmokkun kallast það þegar hluti af görn smokrast inn í sjálfa sig og er algengasta ástæða garnastíflu hjá börnum á aldrinum þriggja mánaða til þriggja ára. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna nýgengi, aldur, kyn og einkenni garnasmokkunar hjá börnum á Íslandi, greiningartækni, árangur meðfer...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín Pétursdóttir, Þráinn Rósmundsson, Pétur H Hannesson, Páll Helgi Möller
Other Authors: Læknadeild Háskóla Íslands.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302292
Description
Summary:Garnasmokkun kallast það þegar hluti af görn smokrast inn í sjálfa sig og er algengasta ástæða garnastíflu hjá börnum á aldrinum þriggja mánaða til þriggja ára. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna nýgengi, aldur, kyn og einkenni garnasmokkunar hjá börnum á Íslandi, greiningartækni, árangur meðferðar, endurkomu og dánartíðni. Rannsóknin var afturskyggn þar sem safnað var gögnum úr sjúkraskrám barna sem höfðu fengið garnasmokkun á Íslandi á 25 ára tímabili (1986-2010). Sjúklingar voru fundnir með því að leita í rafrænu sjúkraskrárkerfi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Alls greindust 67 börn með garnasmokkun á tímabilinu, 44 drengir (66%) og 23 stúlkur (34%). Börnin voru á aldrinum þriggja mánaða til 11 ára (miðgildi 8 mánuðir). Nýgengi garnasmokkunar var 0,4 tilfelli á hver 1000 börn yngri en eins árs. Garnasmokkunin var algengust á mótum smágirnis og ristils og var staðsett þar í 94% tilvika og í 70% tilvika var orsökin óþekkt. Helsta greiningaraðferðin var skuggaefnisinnhelling um endaþarm sem var jafnframt helsta meðferðarúrræðið. Hlutfall skuggaefnisinnhellinga þar sem leiðrétting tókst var 62%. Tæplega helmingur barnanna gekkst undir skurðaðgerð og var framkvæmt hlutabrottnám á görn hjá 6 börnumeða 9% allra sjúklinganna. Þrjú börn eða 4% fengu endurtekna garnasmokkun. Árangur meðferðar við garnasmokkun er góður á Íslandi en æskilegt er að snúa við þeirri þróun sem hér sést, að innhellingum sé að fækka og skurðaðgerðum að fjölga á rannsóknartímanum. Intussusception occurs when a proximal portion of the bowel invaginates into the distal bowel. It is the most common cause of intestinal obstruction in children between 3 months and 3 years. This study aimed to assess patient profile, clinical presentation, diagnostic methods, treatment and outcome in children diagnosed with intussusception in Iceland. We conducted a retrospective chart review of all children diagnosed with intussusception in Iceland during a 25 year period (1986-2010). Patients were identified from a medical record database in ...