Orku- og próteinneysla sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala.

Að meta orku- og próteinneyslu sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala og bera saman við áætlaða orku- og próteinþörf. Markmiðið var einnig að meta næringarástand sama sjúklingahóps. Þátttakendur voru sjúklingar sem lögðust inn á hjarta- og lungnaskurðdeild. Orku- og próteininnihald 5 að...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Dagný Ösp Vilhjálmsdóttir, Harpa Hrund Hinriksdóttir, Fríða Rún Þórðardóttir, Inga Þórsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir
Other Authors: Rannsóknastofu í Næringarfræði við Háskóla og Landspítala.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302279
Description
Summary:Að meta orku- og próteinneyslu sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala og bera saman við áætlaða orku- og próteinþörf. Markmiðið var einnig að meta næringarástand sama sjúklingahóps. Þátttakendur voru sjúklingar sem lögðust inn á hjarta- og lungnaskurðdeild. Orku- og próteininnihald 5 aðalmáltíða sem framreiddar eru frá eldhúsi Landspítala er þekkt. Þegar liðnar voru að minnsta kosti 48 klukkustundir frá aðgerð voru allir matarafgangar, ásamt millibitum, vigtaðir og skráðir í þrjá daga samfellt. Orku- og próteinþörf var áætluð út frá neðri mörkum gilda í klínískum leiðbeiningum um næringu sjúklinga (25-30 hitaeiningar/kg líkamsþyngdar/sólarhring og 1,2-1,5 grömm/kg líkamsþyngdar/sólarhring, miðað við kjörþyngd). Næringarástand (líkur á vannæringu) var metið með gildismetnu 7 spurninga skimunareyðublaði þar sem 0-2 stig gefa til kynna litlar líkur á vannæringu, 3-4 stig ákveðnar líkur á vannæringu og ≥5 stig miklar líkur á vannæringu. Niðurstöður eru birtar fyrir 61 sjúkling. Orkuneysla var að jafnaði 19±5,8 hitaeiningar/kg líkamsþyngdar/sólarhring. Meðalpróteinneysla reyndist vera 0,9±0,3 grömm/kg líkamsþyngdar/sólarhring. Þorri þátttakenda (>80%) náði ekki lágmarksviðmiðum fyrir orkuneyslu annars vegar og próteinneyslu hins vegar og átti það við um alla skráningardagana þrjá. Við mat á næringarástandi reyndust 14 sjúklingar (23%) annaðhvort vera vannærðir (≥5 stig) eða í hættu á vannæringu (3-4 stig). Orku- og próteinneysla þeirra var að jafnaði nær áætlaðri orku- og próteinþörf en neysla þeirra sjúklinga sem voru vel nærðir (0-2 stig), sem að hluta til mátti rekja til almennari notkunar næringardrykkja. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áætlaðri orku- og próteinþörf sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild sé ekki fullnægt, jafnvel ekki á 5. degi eftir aðgerð, ef fylgja á klínískum leiðbeiningum um næringu sjúklinga á Landspítala. Huga þarf betur að næringu inniliggjandi sjúklinga, allt frá vönduðu mati á næringarástandi til viðeigandi næringarmeðferðar. The aim was to estimate ...