Lungnasegarek á Landspítala 2005-2007 - nýgengi, byrtingarmynd, áhættuþættir og horfur.

Lungnasegarek er alvarlegur sjúkdómur og algengt vandamál hjá sjúklingum sem leggjast inn á sjúkrahús. Faraldsfræði sjúkdómsins á Íslandi er að miklu leyti órannsökuð. Markmið þessarar rannsóknar var að meta nýgengi lungnasegareks, birtingarmynd sjúkdómsins, áhættuþætti og horfur meðal sjúklinga sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristján Óli Jónsson, Uggi Þ Agnarsson, Ragnar Danielsen, Guðmundur Þorgeirsson
Other Authors: Læknadeild Háskóla Íslands, Hjartadeild Landspítala
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/302207
Description
Summary:Lungnasegarek er alvarlegur sjúkdómur og algengt vandamál hjá sjúklingum sem leggjast inn á sjúkrahús. Faraldsfræði sjúkdómsins á Íslandi er að miklu leyti órannsökuð. Markmið þessarar rannsóknar var að meta nýgengi lungnasegareks, birtingarmynd sjúkdómsins, áhættuþætti og horfur meðal sjúklinga sem lögðust inn á Landspítalann á þremur árum. Rannsóknin var afturskyggn athugun á sjúkraskrámsjúklinga sem fengu greininguna lungnasegarek (I26 samkvæmt ICD10) á árunum 2005-2007. Upplýsinga var aflað um aldur, einkenni, meðferð, áhættuþætti og undirliggjandi sjúkdóma, greiningaraðferðir og afdrif. Þýðið var 312 sjúklingar og nýgengi lungnasegareks á Landspítala 5 af hverjum 1000 sjúklingum. Þrjátíu daga dánarhlutfall var 9,9% (95% öryggisbil 6,6-13,3%). Algengasta einkenni við greiningu var mæði (81%) og greining oftast gerð með tölvusneiðmynd (89%). Meðferð var í flestum tilvikum segavarnandi lyfjameðferð (96%). Marktæk aukning reyndist á tíðni gáttatifs meðal sjúklinga með lungnaháþrýsting samkvæmt hjartaómun (32% en 10% meðal þeirra sem ekki höfðu lungnaháþrýsting, p=0,026). Dánartíðnin reyndist marktækt hærri meðal kvenna, 13%, en 6,5% meðal karla (p= 0,049) og meðal þeirra sem höfðu engin hefðbundin einkenni lungnasegareks (36% en 8,1% meðal þeirra sem höfðu slík einkenni, p=0,012). Nýgengi lungnasegareks á Landspítala var 5 af hverjum 1000 innlögðum sjúklingum sem er heldur hærra en margar erlendar rannsóknir hafa sýnt. Dánarhlutfall var hins vegar svipað og hefur snarlækkað frá því lungnasegarek var síðast rannsakað á Íslandi fyrir 40 árum. --- Pulmonary embolism is a serious disease and common among hospitalized patients. The incidence of pulmonary embolism in Iceland is largely unknown. The purpose of this study was to evaluate the incidence, clinical presentation, risk factors and outcome among patients diagnosed with pulmonary embolism at Landspítali, The National University Hospital of Iceland. A retrospective analysis of medical records of patients diagnosed with the ICD-10 diagnosis I26 (Pulmonary ...