Skorpulifur, lifrarbólga C og áfengisneysla á Íslandi [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nýgengi skorpulifrar á Íslandi er hið lægsta sem þekkist meðal vestrænna þjóða. Rannsókn fyrir tímabilið 1950-1990 sýndi að nýgengi var að meðaltali 4,8 tilfelli árlega fyrir 100.000 íbúa (1). Á árunum 1...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Þjóðleifsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/18752
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Nýgengi skorpulifrar á Íslandi er hið lægsta sem þekkist meðal vestrænna þjóða. Rannsókn fyrir tímabilið 1950-1990 sýndi að nýgengi var að meðaltali 4,8 tilfelli árlega fyrir 100.000 íbúa (1). Á árunum 1994-2003 var nýgengi 3,4 sem er 4-6 sinnum lægra en hjá flestum öðrum vestrænum þjóðum (2). Skorpulifur er endastig margra ólíkra sjúkdóma en meðal vestrænna þjóða er alkóhólismi langalgengasta orsökin (50-70%) og næst á eftir kemur lifrarbólga C (8-12%), en ef þessir sjúkdómar fara saman þá margfaldast skaðsemin. Lifrarbólga C er nýr sjúkdómur á Íslandi, mest bundin við fíkniefnaneytendur og alls hafa um 1100 einstaklingar greinst með lifrarbólgu C á Íslandi. Í þessu tölublaði Læknablaðsins er grein um 97 einstaklinga úr þessum hópi sem fóru í lifrarsýnatöku og var könnuð bólguvirkni og bandvefsmyndun og tengsl við klíníska þætti. Um 73% sjúklinga höfðu enga/mjög væga bólgu og 86% voru með enga/mjög væga bandvefsmyndun og einungis fjórir höfðu skorpulifur. Þessi lága tíðni er ekki alveg óvænt þar sem meðgöngutími skorpulifrar er 10-30 ár og flestir höfðu verið sýktir í minna en 10 ár.