Um læknisþjónustu sérgreina utan sjúkrahúsa [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarna mánuði hafa samningar sérfræðilækna og Tryggingastofnunar ríkisins (TR) verið til umfjöllunar víða. Sú umfjöllun hefur einkennst af lítilli þekkingu og innsæi en meira af upphrópunum og stórum...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórður Sverrisson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/13884
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarna mánuði hafa samningar sérfræðilækna og Tryggingastofnunar ríkisins (TR) verið til umfjöllunar víða. Sú umfjöllun hefur einkennst af lítilli þekkingu og innsæi en meira af upphrópunum og stórum orðum. Fyrir sérfræðinga hefur þessi umræða verið meiðandi en áhugi og vilji til að skoða málið af alvöru er takmarkaður hjá fjölmiðlum og eru þeir dyggilega studdir af ýmsum hrópendum af vettvangi stjórnmála og þjóðmála. Þessi umræða er þannig að trúlega er rétt að fyrirgefa þeim því þeir vita ei hvað þeir gjöra. Megináhættan er þó að almannatryggingakerfinu verði unnið óbætanlegt tjón og heilbrigðisþjónusta versni, samanber barnalæknaþjónustuna sem nýlega var í fréttum. Heilbrigðisþjónustan hvílir á þrem meginstoðum, heilsugæslu, sjúkrahúsum og -stofnunum og síðan sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Síðastnefndi hópurinn hefur haft sérstöðu þar sem miðstýring hefur verið minnst þar og áherslan á að veita þjónustu mest. Þessi meginstoð hefur því sætt harðastri gagnrýni og er grunuð um ýmis þaulhugsuð samsæri gegn almenningi og skattgreiðendum í baráttu sinni gegn stofnanavæðingu og afkastaleysi. Svo mun alltaf verða. Merkilegt er að öll umræða um heilbrigðismál snýst fljótlega um launakjör lækna, líkt og menntamál snúast í umræðu um kjör kennara, og jafnvel trúmál um laun presta. Viðfangsefnið gleymist, - því að þjónusta skal hin sjúka, nemandann og sóknarbarnið. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar hafa árum saman rekið stofur sínar og hefur þeim vaxið fiskur um hrygg þar sem tæknibyltingin hefur gert læknum kleift að veita meiri þjónustu á stofum. Þessi breyting bætir þjónustuna og er mun ódýrari en aðrir valkostir.