Læknadagar - fyrir hverja? [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Enn á ný er kominn desember. Jól og áramót framundan en undanfarin ár hefur þessi tími ársins einnig markað önnur tímamót í mínum huga: Undanfari Læknadaga. Nú veit ég að fáir aðrir hugsa á þessum nótum...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnór Víkingsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/13443
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Enn á ný er kominn desember. Jól og áramót framundan en undanfarin ár hefur þessi tími ársins einnig markað önnur tímamót í mínum huga: Undanfari Læknadaga. Nú veit ég að fáir aðrir hugsa á þessum nótum í desember og er það gott og rétt. Samt vona ég að allmargir læknar muni eyða nokkrum mínútum í jólamánuðinum til að hugleiða ofangreindan titil: Fyrir hverja eru Læknadagar? Fræðsla og menntun eru þættir svo samofnir læknisstarfinu að flestum kollegum þykir óhugsandi annað en að vera síleitandi að nýrri þekkingu. Ég fullyrði að sú virðing sem almennt er borin fyrir læknum í samfélaginu er ekki síst tilkomin vegna þeirrar löngunar flestra lækna að reyna ætíð að veita skjólstæðingum sínum þá bestu mögulegu læknisþjónustu sem þekking hvers tíma býður upp á. Sú árþúsunda þróun fræðslustarfsemi lækna sem kannski hófst með Hippókratesi 400 árum fyrir Kristsburð og lifir enn dágóðu lífi er mögnuð og ótrúleg saga og til þess fallin að gera mann hreykinn af því að tilheyra þessari stétt fræðara. Manni finnst á stundum að þessi þörf lækna til að fræðast og miðla þekkingu sinni til annarra hljóti að vera greypt í einhver "fræðslugen" sem hafi þróast á þessu tímabili. Engu að síður hefur ýmsum samtökum lækna þótt tilhlýðilegt að setja þetta augljósa mikilvægi fræðslustarfsemi í lög og reglur. Til dæmis segir í Codex Ethicus, 3. gr: "Læknir skal líta á fræðslustarf sem ljúfa og sjálfsagða skyldu." og í lögum Læknafélags Íslands er einn megintilgangur félagsins sagður vera að "stuðla að aukinni menntun lækna" meðal annars með Fræðslustofnun lækna sem skal "styrkja símenntun og fræðslustarf lækna".