Mál er að linni! [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarna áratugi hefur umræða risið með reglulegu millibili í samfélaginu um hvort lyfjafyrirtæki komi upplýsingum á framfæri við lækna á eðlilegan hátt. Spurt er hvort samskipti lækna og lyfjafyrirtæk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörn Sveinsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/12579
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarna áratugi hefur umræða risið með reglulegu millibili í samfélaginu um hvort lyfjafyrirtæki komi upplýsingum á framfæri við lækna á eðlilegan hátt. Spurt er hvort samskipti lækna og lyfjafyrirtækja séu þannig að þau valdi trúnaðarbresti milli lækna og sjúklinga annars vegar og á milli lækna og heilbrigðisyfirvalda hins vegar. Því hefur verið haldið fram, að fræðsla, sem læknar njóta hjá lyfjafyrirtækjum, kunni að leiða til ótraustari ákvarðana um lyfjaávísanir og að risna, sem læknar fá í tengslum við þessa fræðslu, geri þá vilhalla framleiðslu þeirra lyfjafyrirtækja, sem í hlut eiga (1). Framkvæmdastjórn Landspítala hefur sett læknum spítalans reglur um samskipti við lyfjafyrirtæki og nefnd á vegum heilbrigðis- og tryggingaráðherra með þátttöku fulltrúa Læknafélags Íslands, skilaði honum nýlega áfangaskýrslu, þar sem fjallað er um aukið aðhald að þessu leyti.