Carabelli-sérkenni á barna- og fullorðinstönnum Íslendinga

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Notaðar voru gipsafsteypur af tönnum 1010 barna og unglinga frá Húsavík og Norður- og Suður- Þingeyjarsýslum sem aflað var 1973-75. Flokkunarkerfi Dahlbergs (4) var beitt við leit að og flokk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðjón Axelsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/116865
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Notaðar voru gipsafsteypur af tönnum 1010 barna og unglinga frá Húsavík og Norður- og Suður- Þingeyjarsýslum sem aflað var 1973-75. Flokkunarkerfi Dahlbergs (4) var beitt við leit að og flokkun á Carabelli-sérkenni á barna- og fullorðinsjöxlum og viðmiðunarmódel Dahlbergs (plaque 12a) og Hanihara (plaque D7) höfð til hliðsjónar. Jaxlar í hægri og vinstri hlið voru skoðaðir. Þar sem marktækur munur á tíðni Carabelli-sérkennis milli hliða fannst ekki voru niðurstöður úr hægri hlið notaðar. Tölur úr vinstri hlið voru þó notaðar þegar samsvarandi jaxl vantaði í hægri hlið eða reyndist ónothæfur. Með nokkurra vikna millibili voru 610 jaxlar skoðaðir tvisvar. Sama niðurstaða fékkst í 88,7% tilfella. Carabelli-sérkennið fannstá 98,2% dm2, 91,1% M1 og 53,2% M2 sem er með því hæsta sem greinst hefur hjá þjóðum af hvíta kynstofninum. Munur milli kynja var ekki marktækur. Dældir (holur og mismunandi skorur) fundust á 49,7% dm2, 23,3% M1 og 32,2% M2. Hólar (bungur og kúspar) voru algengastir á M1 (67,6%), næst algengastir á dm2 (48,5%) og fundust á 21% M2. Vegna þess hve bungur voru algengar á dm2, M1 og M2 var tíðni hóla á þessum þrem tönnum sú hæsta sem fundist hefur. The material consisted of dental stone casts of the dentitions of 1010 children, aged 6-17 years, from two rural and one urban population, north-east Iceland. Routine methods in making alginate impressions and pouring the casts were adhered to. The incidence and degree of expression of the Carabelli trait were scored according to the eight-grade scale of Dahlberg (4) with costant reference to the standard plaques of Dahlberg (36) and Hanihara (37). As significant laterality was not observed, right side recordings were used. The left side was used only to fill in missing right side data. A total of 610 duplicate determinations were made with a few weeks between observations. Reproducibility was 88.7%. The Carabelli trait was present in 98.2% of the ...