Forprófun á íslenskri útgáfu Sjálfsmatskvarða Becks fyrir börn og unglinga

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Gerð var forprófun á Sjálfsmatskvörðum Becks fyrir börn á aldrinum 7-14 ára til þess að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu af kvörðunum. Þátttakendur voru 293 úr 12 grunnskólum í Reykjavík...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðmundur Skarphéðinsson, Daníel Þór Ólason, Hákon Sigursteinsson, Jóhanna V. Haraldsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/11428
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Gerð var forprófun á Sjálfsmatskvörðum Becks fyrir börn á aldrinum 7-14 ára til þess að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu af kvörðunum. Þátttakendur voru 293 úr 12 grunnskólum í Reykjavík. Próffræðilegir eiginleikar reyndust sambærilegir við erlendar rannsóknir. Innri áreiðanleiki var hár og fylgni atriða við heildarskor hvers kvarða viðunandi. Samleitni kvarða var athugað með þáttagreiningu og niðurstöður sýndu að þunglyndi, kvíði og hegðunarvandi voru einsleitir kvarðar en atriði sjálfsmyndar og reiði mynduðu tvo þætti. Gerð var þáttagreining á öllum 100 atriðum kvarðanna. Niðurstöður sýndu þrjá þætti sem skýrðu 38,6% dreifingar. Fyrsti þáttur samanstóð af þunglyndi, reiði og kvíða. Á annan þátt lögðust þrjú atriði reiði og 18 atriði hegðunarvanda og á þriðja þátt lögðust 18 atriði sjálfsmyndar. Há fylgni reyndist vera milli kvíða, þunglyndis og reiði en það er sambærilegt niðurstöðum erlendra rannsókna. Réttmæti kvarðanna var athugað með þremur spurningum um líðan í skóla og stríðni. Spurning um líðan í frímínútum hafði hæstu fylgni við þunglyndi sem bendir til þess að nemendur sem sýna þunglyndiseinkenni líður frekar illa í frímínútum. Spurning um líðan í kennslustundum hafði hæstu fylgni við hegðunarvanda og reiði og loks var hæst fylgni milli hegðunarvanda og stríðni. Enginn kynja- eða aldursmunur kom fram á kvörðum fyrir þunglyndi, reiði og kvíða. Hins vegar var meðaltal eldri hóps og drengja hærra á kvarða fyrir hegðunarvanda en hjá yngri hóp og stúlkum. Meðaltal á sjálfsmyndarkvarða var lægra í hópi eldri þáttakenda og meiri munur var á milli yngri og eldri stúlkna sem bendir til að sjálfsmynd verði neikvæðari á unglingsárum og sérstaklega hjá stúlkum. Próffræðilegir eiginleikar reyndust í megindráttum góðir en safna þarf meiri gögnum um áreiðanleika og réttmæti kvarðanna áður en hægt er að mæla með almennri notkun þeirra hér á landi. A pilot study of the Beck Youth Inventories (BYI) for ...