Clostridium difficile sýkingar : vaxandi heilsufarsvandamál á Vesturlöndum

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Clostridium difficile sýkingar (e. Clostridium difficile infections (CDI)) hafa verið þekkt heilsufarsvandamál í fleiri áratugi. Mikilvæg rannsóknarvinna hefur aukið þekkingu okkar á klínísku...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Einar S Björnsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/113475
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Clostridium difficile sýkingar (e. Clostridium difficile infections (CDI)) hafa verið þekkt heilsufarsvandamál í fleiri áratugi. Mikilvæg rannsóknarvinna hefur aukið þekkingu okkar á klínískum greiningaraðferðum, faraldsfræði og meðferð þessara iðrasýkinga. Tíðni CDI hefur farið vaxandi víðast hvar á Vesturlöndum og meinvirkari stofnar hafa komið fram. Faraldrar hafa einnig brotist út á mörgum stöðum í heiminum og fleiri alvarlegar sýkingar og aukin dánartíðni hafa fylgt í kjölfarið. Kostnaður heilbrigðiskerfisins hefur aukist að sama skapi sökum þessa. Afleiðingar CDI eru langvarandi spítalalegur vegna hvimleiðs niðurgangs, blóðsýkingar og lost í kjölfar hennar, ristilrof og brottnám ristils. Í byrjun þessa áratugar var lýst faröldrum í Quebec í Kanada af CDI þar sem tilfellum fjölgaði gífurlega ásamt fjölgun alvarlegra afleiðinga þessara sýkinga.1 Faraldrar þessir einkenndust af fjórum til fimm sinnum hærra nýgengi af CDI og aukinni dánartíðni frá 4,5% árið 1991 upp í 22% árið 2004.1 Faröldrum af þessu tagi hefur einnig verið lýst í Evrópu. Fjöldi CDI tilfella í Bandaríkjunum virðist sífellt fara vaxandi og á síðustu árum hefur verið áætlað að um 450.000-750.000 tilfelli eigi sér stað þar í landi á ári.2 Sterk tengsl á milli sýklalyfjanotkunar og CDI hefur verið þekkt áratugum saman en aukning af CDI tengd notkun prótónupumpuhemla hefur nýlega verið lýst.3-5