Íslensk heilbrigðisþjónusta á erfiðum tímum [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Heilbrigðisþjónusta á Íslandi hefur verið í mjög háum gæðaflokki í alþjóðlegu samhengi. Um það vitna margvíslegar hagtölur og nægir að nefna lægsta burðarmálsdauða í heimi og hæstu ævilíkur....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Steinn Jónsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/111734
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) Heilbrigðisþjónusta á Íslandi hefur verið í mjög háum gæðaflokki í alþjóðlegu samhengi. Um það vitna margvíslegar hagtölur og nægir að nefna lægsta burðarmálsdauða í heimi og hæstu ævilíkur. Kostnaður við heilbrigðisþjónustu á Íslandi er þó rétt í meðallagi fyrir OECD-ríki eða um 9% af vergri landsframleiðslu.1 Á undanförnum áratugum hefur orðið mikil framþróun í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Þar ber vafalaust hæst sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík í Landspítala-háskólasjúkrahús. Sú ráðstöfun var umdeild og erfið eins og búast mátti við. Frá faglegu sjónarmiði hefur þó orðið ótvíræður árangur af sameiningunni. Sérgreinar læknisfræðinnar hafa styrkst og þannig myndast grundvöllur fyrir aukinni sérhæfingu í þágu betri þjónustu við sjúklinga. Þá hafa skapast aukin tækifæri til kennslu og vísindastarfa og eru íslenskir læknar leiðandi í vísindasamfélagi landsins þegar litið er til birtra greina í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum.