Læknablaðið nírætt [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Læknablaðið hefur nú náð sjaldgæfum áfanga í útgáfumálum hérlendis, en einungis Skírnir - Tímarit hins íslenska bókmenntafélags (1827), elsta tímarit á Norðurlöndum, Morgunblaðið (1913) og tvö af ritum Bændas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Óskar Einarsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/10852
Description
Summary:Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Læknablaðið hefur nú náð sjaldgæfum áfanga í útgáfumálum hérlendis, en einungis Skírnir - Tímarit hins íslenska bókmenntafélags (1827), elsta tímarit á Norðurlöndum, Morgunblaðið (1913) og tvö af ritum Bændasamtakanna, Búnaðarritið og Freyr (1904) hafa lengri samfellda útgáfusögu. Því er vel við hæfi að til­einka Læknablaðinu þetta hefti og rifja upp markverð greinaskrif úr sögu þess. Upphaf útgáfu Læknablaðsins má rekja til félagsfunda í Læknafélagi Reykjavíkur sem stofnað var 1909. Á þeim tímum voru allflestir læknar áskrifendur að erlendum fagtímaritum. Upplýsingar um það sem markverðast var á Íslandi í læknisfræðinni komust illa til skila, einkum til lækna utan Reykjavíkur. Héraðslæknar áttu sjaldan heimangengt frá héruðum sínum og því skapaðist þörf fyrir sameiginlegan miðil um læknisfræði og félagsmál meðal íslenskra lækna. Upphaf tuttugustu aldarinnar einkenndist á Íslandi af ríkri sjálfstæðiskennd, bjartsýni og stórhuga framkvæmdaáformum. Hið óljósa valda- og vopnabrölt í Evrópu virtist alls ekki þjaka menn hér á landi. Því var á félagsfundi í LR á árinu 1914 ákveðin bindandi könnun meðal allra lækna á Íslandi um stofnun Læknablaðs. Bréf bárust frá 24 læknum sem allir voru eindregnir stuðningsmenn þessa og var á félagsfundi LR þann 20. janúar 1915 því samþykkt stofnun lækna­blaðs. Í ritstjórn voru kosnir þeir Guðmundur Hannesson sem áður hafði gefið út handritað læknablað á Akureyri árin 1901-1904, Matthías Einarsson og Maggi Júl. Magnús. Læknafélag Íslands kom að útgáfunni frá og með 1. tölublaði 1955 og þannig skipa nú formenn Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands útgáfustjórn ásamt ritstjóra blaðsins.