Læknablaðið 90 ára [ritstjórnargrein]

Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Um þessar mundir er Læknablaðið 90 ára. Á liðnu vori vaknaði sú hugmynd innan ritstjórnar blaðsins að vert væri að minnast þessara tímamóta og gefa yfirlit yfir það sem birst hefur í blaðinu með því að endurb...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vilhjálmur Rafnsson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/10851
Description
Summary:Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Um þessar mundir er Læknablaðið 90 ára. Á liðnu vori vaknaði sú hugmynd innan ritstjórnar blaðsins að vert væri að minnast þessara tímamóta og gefa yfirlit yfir það sem birst hefur í blaðinu með því að endurbirta eina grein frá hverjum áratug úr útgáfusögu blaðsins. Ákveðið var að fá fyrrverandi ritstjórnarmenn til að velja greinarnar og fylgja þeim úr hlaði með greinargerð um valið eða fjalla um efni greinarinnar í ljósi nútímaþekkingar í læknisfræði. Nú er þessi hugmynd orðin að veruleika og komið að les­endum að skoða hvernig til hefur tekist. Ritstjórnin þakkar hér með þeim sem tekið hafa að sér að velja greinarnar og ræða þær. Læknablaðið er afar háð þeim sem í það skrifa og taka að sér viðlíka verkefni og hér er á ferð og allt er það gert án þess að það gefi peninga í aðra hönd. Læknablaðið væri ekki til án þeirra sem í það hafa skrifað frá upphafi og til þessa dags og helst það í hendur við að blaðið hefur haft trygga lesendur.