Brjóstagjöf og áhrif hennar á lífslíkur ungbarna á Íslandi 1910-1925

Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarin ár hefur ungbarnadauði hér á landi verið lægri en nokkur staðar annars staðar í heiminum og Ísland skipar sér á bekk með örfáum þjóðum þar sem færri en 5 af hverjum 1.000 lifandi fæddum börnum deyj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólöf Garðarsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/10773
Description
Summary:Neðst á síðunni er að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Undanfarin ár hefur ungbarnadauði hér á landi verið lægri en nokkur staðar annars staðar í heiminum og Ísland skipar sér á bekk með örfáum þjóðum þar sem færri en 5 af hverjum 1.000 lifandi fæddum börnum deyja fyrir eins árs aldur. Um miðbik 19. aldar var aftur á móti leitun að samfélögum þar sem ungbarnadauði var meiri en hér. Dánartíðni ungbarna á landsvísu fór sjaldnast undir 250 af 1.000 fæddum og sum ár var hún talsvert hærri. Aðeins um helmingur allra barna gat vænst þess að lifa tíu ára afmælisdaginn sinn. Mynd 1 sýnir að um miðja 19. öld var ungbarnadauði hér á landi nær helmingi meiri en annars staðar á Norðurlöndum. Af Evrópulöndum var ungbarnadauði trúlega minnstur í Noregi, aðeins um 100 af hverjum 1.000 fæddum börnum dóu þar á fyrsta ári. Í Englandi og í Danmörku var ungbarnadauði talsvert meiri en í Noregi. Hér var ungbarnadauði aftur á móti áþekkur því sem gerðist á ýmsum þýskumælandi svæðum í Mið-Evrópu, einkum í Bæjaralandi. Líkt og hér á landi hefur mikill ungbarnadauði í Bæjaralandi verið rakinn til óheilsusamlegra barnaeldishátta en þar voru börn ýmist alls ekki lögð á brjóst eða brjóstagjöf var mjög skammvinn.2 Ungbarnadauði á Íslandi tók að minnka í kringum 1870 og var aðeins örfáum áratugum síðar orðinn minni en víðast hvar annars staðar í heiminum. Um 1920 var ungbarnadauði hér jafnlítill og í Noregi, um 50 af 1.000.