Klínískar leiðbeiningar Landspítala um greiningu og meðferð bráðaversnunar á astma

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) janúar 2003 voru gefnar út á vegum Scottish Intercollegiate Guidelines (SIGN) og The British Thoracic Society vandaðar leiðbeiningar um grein-ingu og meðferð bráðrar versnunar á astma. Birt-u...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hjalti Már Björnsson, Gunnar Guðmundsson, Jón Steinar Jónsson, Unnur Steina Björnsdóttir, Inga Sif Ólafsdóttir, Ari J. Jóhannesson
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2007
Subjects:
Ari
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/10714
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) janúar 2003 voru gefnar út á vegum Scottish Intercollegiate Guidelines (SIGN) og The British Thoracic Society vandaðar leiðbeiningar um grein-ingu og meðferð bráðrar versnunar á astma. Birt-ust leiðbeiningarnar í Thorax 2003; 58 (Suppl 1) og eru aðgengilegar á pdf-formi á slóðinni: www.sign.ac.uk/guidelines/fulltext/63/index.html Ástæða þess að talið var æskilegt að þýða og staðfæra hluta leiðbeininganna hér á landi var að um algengt bráðavandamál er að ræða sem læknar þurfa að vera færir um að bregðast við. Því er til mikilla bóta ef hægt er að nálgast einfaldar og skýrar leiðbeiningar um greiningu og meðferð þessara sjúklinga. Rétt er að benda á að heildarleiðbeiningarnar frá SIGN eru mjög ítarlegar og taka meðal annars til astma í börnum, astma á meðgöngu auk almenns fróðleiks um greiningu og meðferð sjúkdómsins. Vinnuhópurinn sem tók að sér að þýða og staðfæra þessar leiðbeiningar um bráðaversnun á astma var skipaður eftirtöldum: Hjalti Már Björnsson, deildarlæknir Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir Jón Steinar Jónsson, heilsugæslulæknir Unnur Steina Björnsdóttir, ofnæmislæknir Inga Sif Ólafsdóttir, deildarlæknir Ari J. Jóhannesson, formaður nefndar um klínískar leiðbeiningar á Landspítala. Þar sem um er að ræða gagnreynda (evidence based) ferla voru óverulegar breytingar gerðar á þeim við þýðingu. Nánari sundurliðun á öllum breytingum sem gerðar voru má finna á vefsvæði kínískra leiðbeininga á www.landspitali.is Uppsetning ferlanna miðast við að auðvelt sé að prenta þá út og hafa á veggspjöldum þar sem þeirra er þörf.