Guðni Th. Jóhannesson: Óvinir ríkisins: Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi

Áhugamenn um sögu kalda stríðsins á Íslandi hafa fengið nóg að lesa á árinu 2006. Umræður og deilur um njósnir og hleranir á þessum viðsjárverðu tímum í Íslandssögunni hafa skipað háan sess í fjölmiðlum, fyrst eftir að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur opinberaði í maí að íslenzk stjórnvöld hefðu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stephensen, Ólafur Þ.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Stjórnsýslustofnun 2006
Subjects:
Online Access:https://ojs.hi.is/index.php/irpa/article/view/c.2006.2.2.1
Description
Summary:Áhugamenn um sögu kalda stríðsins á Íslandi hafa fengið nóg að lesa á árinu 2006. Umræður og deilur um njósnir og hleranir á þessum viðsjárverðu tímum í Íslandssögunni hafa skipað háan sess í fjölmiðlum, fyrst eftir að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur opinberaði í maí að íslenzk stjórnvöld hefðu sex sinnum fengið heimild til að hlera síma sósíalista í kalda stríðinu, síðan í framhaldi af því að Þór Whitehead sagnfræðiprófessor birti í tímaritinu Þjóðmálum ritgerð sína um leynilega öryggisþjónustudeild lögreglunnar í Reykjavík, sem m.a. hélt spjaldskrá yfir kommúnista og fylgismenn þeirra. Umræðurnar um þessi mál bera því glöggt vitni að ekki er enn kulnað í glæðum kalda stríðsins og bergmál umræðna á tímum kalda stríðsins má jafnframt heyra í umræðum um öryggis- og varnarmál Ísland, þótt allar aðstæður séu gjörbreyttar.