D-vítamínbúskapur íslenskra barna og ungmenna Langtímarannsókn

TILGANGUR D-vítamín er mikilvægt fyrir vöxt og líkamlegan þroska barna, ekki eingöngu til að bæta beinheilsu heldur einnig vegna áhrifa þess á aðra starfsemi líkamans. Embætti landlæknis ráðleggur að D-vítamínþéttni í blóði sé minnst 50 nmól/l. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hve stór hluti í...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gunnarsdottir, Berglind, Hrafnkelsson, Hannes, Johannsson, Erlingur, Sigurdsson, Emil L.
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands 2020
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/11250/2729200
https://doi.org/10.17992/lbl.2020.05.579
Description
Summary:TILGANGUR D-vítamín er mikilvægt fyrir vöxt og líkamlegan þroska barna, ekki eingöngu til að bæta beinheilsu heldur einnig vegna áhrifa þess á aðra starfsemi líkamans. Embætti landlæknis ráðleggur að D-vítamínþéttni í blóði sé minnst 50 nmól/l. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hve stór hluti íslenskra barna og ungmenna næðu ráðlagðri D-vítamínþéttni við 7, 9, 15 og 17 ára aldur, ásamt því að kanna breytingar á D-vítamínþéttni yfir tíma og tengsl við kalkvaka (parathyroid hormone status (S-PTH)). EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsóknarhópurinn samanstóð af nemendum 6 grunnskóla í Reykjavík, fæddum árið 1999. Blóðprufur voru teknar fjórum sinnum árin 2006, 2008, 2015 og 2017. Að hluta til var um sömu börn að ræða en fleiri bættust í hópinn árið 2015 og 2017. NIÐURSTÖÐUR Í öllum mælingum voru um eða yfir 60% barna með lægri þéttni D-vítamíns í blóði en Embætti landlæknis ráðleggur. Einungis 13% náðu viðmiðum um þéttni yfir 50 nmól/l í endurteknum mælingum og 38,9% einstaklinganna voru með lægri en ráðlagða þéttni í minnst tveimur blóðprufum. Ekki var marktækur munur milli kynja nema hvað 17 ára stelpur höfðu marktækt hærra D-vítamínþéttni en strákar (p=0,04). S-PTH hafði neikvæða fylgni við D-vítamín við 7, 15 og 17 ára aldur en náði ekki marktækni við 9 ára aldur. ­Meðaltalsgildi S-PTH var lægst við 7 ára aldur en hækkaði síðan með aldri. ÁLYKTUN Þéttni D-vítamíns í blóði hjá meirihluta barna og ungmenna er undir ráðlögðum gildum Embættis landlæknis. Hjá stórum hluta er þéttnin endurtekið of lág. Ljóst er að auka þarf D-vítamíninntöku hjá þessum hópi ef markmið um æskilega þéttni á að nást. Áhrif D-vítamínskorts á lýðheilsu eru þó ekki að fullu þekkt. publishedVersion