Wikibooks: Icelandic Songbook/Ættjarðarkvæði

info The annotations are incomplete. = Iceland = = Icelandic Twilight Song = =Text= ísland farsælda frón Og hagsælda hrímhvíta móðir Hvar er þín fornaldar frægð Frelsið og manndáðin bezt? Alt er í heiminum hveriult Og stund þíns fegursta frama Lýsir sem leyftur um nótt Langt fram á horfinni öld. Lan...

Full description

Bibliographic Details
Format: Book
Language:English
Subjects:
Bak
Online Access:https://en.wikibooks.org/wiki/Icelandic_Songbook/%C3%86ttjar%C3%B0arkv%C3%A6%C3%B0i
Description
Summary:info The annotations are incomplete. = Iceland = = Icelandic Twilight Song = =Text= ísland farsælda frón Og hagsælda hrímhvíta móðir Hvar er þín fornaldar frægð Frelsið og manndáðin bezt? Alt er í heiminum hveriult Og stund þíns fegursta frama Lýsir sem leyftur um nótt Langt fram á horfinni öld. Landið var fagurt og frítt Og fannhvítir jöklanna tindar Himininn heiður og blár Hafið var skínandi bjart. Þá komu feðurnir frægu Og frjálsræðishetjurnar góðu Austan um hyldýpishaf Hingað í sælunnar reit Reystu sér bygðir og bú í blómguðu dalanna skauti Ukust að íþrótt og frægð Undu svo glaðir við sitt. Hátt á eldhrauni upp Þar sem enn þá Öxará rennur Ofan í Almannagjá Alþingi feðranna stóð. Þar stóð hann Þorgeir á þingi Er við trúnni var tekið af lýði Þar komu Gissur og Geir Gunnar og Héðinn og Njáll. Þá riðu hetjur um héruð Og skrautbúin skip fyrir landi Flutu með fríðasta lið Færandi varninginn heim. Það er svo bágt að standa í stað Og mönnunum munar Annaðhvort aftur á bak Ellegar nokkuð á leið. Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs Götuna fram eftir veg? Landið er fagurt og frítt Og fannhvítir jöklanna tindar Himininn heiður og blár Hafið er skínandi bjart. En á eldhrauni upp Þar sem enn þá Öxará rennur Ofan í Almannagjá Alþing er horfið á braut. Nú er hún Snorrabúð stekkur Og lyngið á Lögbergi helga Blánar af berjum hvert ár Börnum og hröfnum að leik. Ó þér unglingafjöld Og íslands fullorðnu synir l Svona er f eðranna f rægð Fallin í gleymsku og dá! =Annotation= By . =Translation= = Song eftir Sigfús Einarsson and Vald Schiött = =Text= Ó fögur er vor fósturjörð Um fríða sumardaga Er laufin grænu litka börð Og leikur hjörð í haga En dalur lyftir blárri brún Mót blíðum sólarloga Og glitrar flötur glóir tún Og gyllir sunna voga. Og vegleg jörð vor áa er Með ísi þakta tinda Um heiðrík kvöld ...