Hinn skynsamlegi agi : dyggðugt líferni og lífshamingja fara saman

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Umfjöllunarefni þessa lokaritgerðar er agi og uppeldi barna. Skoðaðar eru ýmsar uppeldisaðferðir ásamt kenningum er lúta að uppeldi og agastjórnun. Tilgangurinn er að dýpka skilning okkar á aga og agaaðferðum og finna kenningar og/eða up...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Aðalheiður Þorbjörg Guðjónsdóttir, Matthildur Stefánsdóttir 1968-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Agi
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/984
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Umfjöllunarefni þessa lokaritgerðar er agi og uppeldi barna. Skoðaðar eru ýmsar uppeldisaðferðir ásamt kenningum er lúta að uppeldi og agastjórnun. Tilgangurinn er að dýpka skilning okkar á aga og agaaðferðum og finna kenningar og/eða uppeldisaðferðir er geta að okkar mati fallið undir skilgreininguna skynsamlegur agi. Athyglinni er beint að ýmsum uppeldisaðferðum en þó mest að kenningum um siðferði og ræktun persónudyggða, lífsleiknikennslu í skóla og kenningum u heimspekikennslu barna. Fjallað verður um ýmislegt í kenningum Daniels Goleman sem snýr að tilfinningagreind. Við veltum því fyrir okkur hvernig foreldrar og kennarar geti í sameiningu stuðlað að bættum aga og fjöllum um mikilvægi gó fyrirmynda. Umfjöllunin leiddi í ljós að með því að rækta með börnum og kenna þeim a tileinka sér dyggðir í orði og verki eins og siðfræðin og lífsleiknikennslan mæla fy um, að efla með þeim gagnrýna og sjálfstæða hugsun með aðferðu barnaheimspekinnar og að lokum kennsla í tilfinningahæfni er það sem við teljum a stuðli að skynsamlegum aga. Eftir að hafa rýnt í kenningar og skoðað uppeldisaðferðir höfum við sannfærs um gildi þess að innræta börnum siðferðisgildi, dyggðir og gagnrýna sjálfsta hugsun. Við teljum það vera höfuðatriði í uppeldi barna og leiða til skynsamlegs aga og að það sé til hagsbóta fyrir allt þjóðfélagið.