Atferlisfjármál: Hefur kyn og námsval áhrif á áhættuhneigð

Meginmarkmið rannsóknarinnar er að fjalla um þær grundvallarkenningar atferlisfjármála sem snúa að áhættuhneigð og kanna hvort kyn, námsval og framsetning spurninga hefur áhrif á ákvörðunartöku nemenda þegar þeir standa frammi fyrir vali um áhættu. Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í Háskólan...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Mikael Arnarson 1985-, Rúnar Guðnason 1978-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9787
Description
Summary:Meginmarkmið rannsóknarinnar er að fjalla um þær grundvallarkenningar atferlisfjármála sem snúa að áhættuhneigð og kanna hvort kyn, námsval og framsetning spurninga hefur áhrif á ákvörðunartöku nemenda þegar þeir standa frammi fyrir vali um áhættu. Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í Háskólanum í Reykjavík með það að markmiði að kanna áhættuhneigð þeirra. Niðurstöður sýndu að karlar voru áhættusæknari en konur, og nemendur í fjármálatengdu námi voru áhættusæknari en aðrir nemendur, þegar gefið var í skyn að aukin áhættutaka fæli í sér hærri vænta ávöxtun. Innan hóps nemenda í fjármálatengdu námi voru karlar þó ekki áhættusæknari en konur. Þegar ekkert áhættuálag var í boði var ekki munur á áhættuhneigð kynjanna og ekki munur á áhættuhneigð nemenda í fjármálatengdum greinum annars vegar og annarra nemenda hins vegar. Ekki var munur á áhættuhneigð kynjanna meðal nemenda í fjármálatengdu námi. Framsetning spurninga hafði áhrif á val nemenda gagnvart áhættu, sem voru áhættufælnir þegar þeir stóðu frammi fyrir jákvæðri framsetningu valkosta en áhættusæknir þegar framsetning valkosta var neikvæð. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má draga þá ályktun að ekki sé munur á áhættuhneigð kynjanna meðal nemenda í fjármálatengdum greinum.