Viðhorf og þekking foreldra á SMT-skólafærni

Atferlisvandamál grunnskólabarna geta haft slæm áhrif á námsárangur og spá meðal annars fyrir um andfélagslega- og afbrotahegðun á unglings- og fullorðinsárum. Því er mikilvægt að skólar taki á hegðunarfrávikum barna. SMT-skólafærni er heildstætt kerfi sem nær yfir alla nemendur á öllum svæðum skóla...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Biretha Vitalis Joensen, Lilja Sverrisdóttir 1967-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Agi
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9526
Description
Summary:Atferlisvandamál grunnskólabarna geta haft slæm áhrif á námsárangur og spá meðal annars fyrir um andfélagslega- og afbrotahegðun á unglings- og fullorðinsárum. Því er mikilvægt að skólar taki á hegðunarfrávikum barna. SMT-skólafærni er heildstætt kerfi sem nær yfir alla nemendur á öllum svæðum skólans. Megináhersla kerfisins er að bæta námsfærni, aga, hegðun og félagsfærni barna og unglinga í öruggu umhverfi. Samkvæmt SMT-skólafærni eru það foreldrar og skóli sem gegna lykilhlutverki þegar kemur að bættir hegðun og góðri frammistöðu hjá nemendum og er því nauðsynlegt að gott samstarf ríki milli foreldra og skóla. Þess vegna er mikilvægt að skoða viðhorf og þekkingu foreldra til SMT-skólafærni skólans. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 157 foreldrar í einum grunnskóla á Akureyri sem hóf innleiðingu kerfisins haustið 2006. Stuðst var við spurningalista Kristínar Elvu Viðarsdóttur, sálfræðings og svöruðu foreldrar 34 atriðum sem mældu viðhorf og þekkingu þeirra á SMT-skólafærni. Niðurstöður úr rannsókninni sýndu að foreldrar voru almennt ánægðir með kerfið og skildu flestir hvernig það virkar. Um 60% foreldra höfðu lesið sér til um SMT-skólafærni og helmingur þeirra vildi fá meiri fræðslu. Niðurstöður þessarar rannsóknar um viðhorf og þekkingu foreldra á SMT-skólafærni geta komið skólanum að gagni í áframhaldandi vinnu við agakerfið.