Félagslegur auður og myndun tengsla í framhaldsskólum á Akureyri

Verkefnið er lokað Viðfangsefni þessa lokaverkefnis verður að skoða hvaða mismunandi eiginleikar eru til staðar í uppbyggingu kennslu og félagsstarfs í framhaldsskólunum tveimur á Akureyri sem stuðla að uppsöfnun félagslegs auðs og myndun tengsla. Veigamesti munurinn er að í öðrum þeirra er notast v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ómar Örn Karlsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9509
Description
Summary:Verkefnið er lokað Viðfangsefni þessa lokaverkefnis verður að skoða hvaða mismunandi eiginleikar eru til staðar í uppbyggingu kennslu og félagsstarfs í framhaldsskólunum tveimur á Akureyri sem stuðla að uppsöfnun félagslegs auðs og myndun tengsla. Veigamesti munurinn er að í öðrum þeirra er notast við bekkjarkerfi, þar sem lítil hreyfing er á nemendum milli kennslustunda og eingöngu boðið upp á bóknám en í hinum skólanum er áfangakerfi, þar sem mikil hreyfing er á nemendum milli kennslustunda, og mjög fjölbreytt námsframboð. Litið verður á þætti eins og félagsstarf, félagslífs, hefðir, sögu, tengslamyndum, traust, hjálpsemi og samvinnu innan skólanna. Magn tengsla verður athugað og reynt að ákvarða hvort þau séu sterk eða veik, samkvæmt skilgreiningum Granovetter og brúandi eða bindandi tengsl félagslegs auðs, samkvæmt skilgreiningum Putnam. Leitast var við að athuga hvort veik brúandi tengsl mynduðust þar sem áfangakerfi er notað og fjölbreytt námsumhverfi er til staðar sem myndi þá veita aðgengi að fólki með mismunandi kunnáttu. Það kom þó í ljóst að bekkjakerfið virtist vera mikilvægasta atriðið bæði fyrir myndun mismunandi og sterkari tengsla sem svo virðast leiða af sér meiri félagslegan auð fólginn í trausti, hjálpsemi og samvinnu. Einnig gætu hefðir, saga og stolt komið að gagni. Spurningalistar og eigindleg viðtöl voru notuð við öflun gagna.