Kynjabundin stjórnun

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Stjórnun hefur mikið breyst undanfarna áratugi, með breyttu þjóðfélagi og breyttum áherslum. Atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist og þar af leiðandi hefur fjöldi þeirra kvenna sem vinna við stjórnunarstöður aukist. En hvaða breytingar hef...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Díana Jóhannsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/932
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Stjórnun hefur mikið breyst undanfarna áratugi, með breyttu þjóðfélagi og breyttum áherslum. Atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist og þar af leiðandi hefur fjöldi þeirra kvenna sem vinna við stjórnunarstöður aukist. En hvaða breytingar hefur þessi þróun haft í för með sér? Stjórna konur og karlar eins eða er grundvallarmunur á stjórnunarháttum kynjanna? Kynjabundin stjórnun er mjög umdeilt fyrirbæri og margar kenningar sem fjalla um það. Það er þó víst að hvort sem einhvern mun er að finna á stjórnunarháttum kynjanna er þekking lykilatriðið. Í þessari rannsókn var lagður fyrir spurningarlisti fyrir alla stjórnendur og millistjórnendur innan viðskiptabankasviðs KB banka. Listinn var sjálfsmat stjórnenda á stjórnunarstíl sínum og með honum er hægt að greina hvort að kynjamunur eigi sér stað innan bankans. Helstu rannsóknarniðurstöður voru þær að stjórnun karla og kvenna er í stórum dráttum eins, þó eru nokkur atriði sem munar miklu á. Útdeiling verkefna er það atriði sem munar hvað mestu á, svo virðist sem konur eigi almennt erfiðara með að deila út verkefnum til undirmanna sinna heldur en karlar. Að sama skapi kom fram í rannsókninni að konur telja sig frekar hrósa undirmönnum sínum og finna frekar til samkenndar með þeim. Lykilorð : Kyn, Kynjamismunur, stjórnun, glerþak, staðalímyndir.