Mergæxli á Íslandi 2000 - 2009

Inngangur: Mergæxli er illkynja, ólæknandi sjúkdómur sem stafar af fjölgun einstofna plasmafrumna í beinmerg, er 1% allra æxla á Íslandi og kemur einna helst fram í einstaklingum eldri en 65 ára. Undanfarið hafa nýjar meðferðir verið þróaðar og sjúklingar yngri en 70 ára gangast flestir undir háskam...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9124
Description
Summary:Inngangur: Mergæxli er illkynja, ólæknandi sjúkdómur sem stafar af fjölgun einstofna plasmafrumna í beinmerg, er 1% allra æxla á Íslandi og kemur einna helst fram í einstaklingum eldri en 65 ára. Undanfarið hafa nýjar meðferðir verið þróaðar og sjúklingar yngri en 70 ára gangast flestir undir háskammtameðferð með eigin stofnfrumuígræðslu. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna lifun sjúklinga sem greindust með mergæxli á Íslandi á árunum 2000-2009 með tilliti til áhættuþátta, aldurs við greiningu og meðferðar og bera saman við fyrri rannsókn. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn og nær til allra sem greindust með mergæxli á árunum 2000 – 2009. Krabbameinsskrá veitti upplýsingar um nýgreind tilfelli og klínískar upplýsingar fengust úr sjúkraskrám Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og Læknasetursins. Útbúinn var gagnagrunnur með fyrrnefndum upplýsingum og lifun skoðuð með tilliti til aldurs, tegundar einstofna mótefnis, ISS stigunarkerfis og meðferðar. Gerð voru Kaplan – Meier gröf til þess að kanna hvort marktækur munur væri á lifun milli hópa og lifun einstaklinga úr fyrri rannsókn borin saman við niðurstöður þessarar rannsóknar. Niðurstöður: Alls greindust 148 einstaklingar á tímabilinu, 76 karlmenn og 72 konur. Árlegt aldursstaðlað nýgengi á árunum 2000 – 2009 er 4,1 fyrir karla og 3,2 fyrir konur af hverjum 100.000. Meðalaldur við greiningu var 70,2 ár. Helstu einkenni við greiningu voru þreyta (58,1%), verkir í stoðkerfi (27,7%) og þyngdartap (9,5%). Alls 61 einstaklingur fékk meðferð með nýju lifi, bortezómíð (Velcade®) og var 50% lifun þeirra 74 mánuðir borið saman við 29 hjá þeim sem fengu ekki bortezómíð (p<0,001). Alls 42 fengu stofnfrumuígræðslu og er meðallifun þeirra 88,8 mánuðir borið saman við 42,8 mánuði hjá þeim sem fengu ekki slíka meðferð (p<0,001) en 50% lifun er ekki náð. Þeir sjúklingar sem fengu bortezómíð en ekki stofnfrumumeðferð, 65 ára og eldri, reyndust lifa í 50 mánuði borið saman við 33 í fyrri rannsókn (p=0,03). Ekki reyndist vera marktækur munur á lifun ...