Óvinir ríkisins: Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi

Bókardómur Áhugamenn um sögu kalda stríðsins á Íslandi hafa fengið nóg að lesa á árinu 2006. Umræður og deilur um njósnir og hleranir á þessum viðsjárverðu tímum í Íslandssögunni hafa skipað háan sess í fjölmiðlum, fyrst eftir að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur opinberaði í maí að íslenzk stjórn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólafur Þ. Stephensen
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/9029
Description
Summary:Bókardómur Áhugamenn um sögu kalda stríðsins á Íslandi hafa fengið nóg að lesa á árinu 2006. Umræður og deilur um njósnir og hleranir á þessum viðsjárverðu tímum í Íslandssögunni hafa skipað háan sess í fjölmiðlum, fyrst eftir að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur opinberaði í maí að íslenzk stjórnvöld hefðu sex sinnum fengið heimild til að hlera síma sósíalista í kalda stríðinu, síðan í framhaldi af því að Þór Whitehead sagnfræðiprófessor birti í tímaritinu Þjóðmálum ritgerð sína um leynilega öryggisþjónustudeild lögreglunnar í Reykjavík, sem m.a. hélt spjaldskrá yfir kommúnista og fylgismenn þeirra. Umræðurnar um þessi mál bera því glöggt vitni að ekki er enn kulnað í glæðum kalda stríðsins og bergmál umræðna á tímum kalda stríðsins má jafnframt heyra í umræðum um öryggis- og varnarmál Ísland, þótt allar aðstæður séu gjörbreyttar.