Fjármögnun íbúðahúsnæðis

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Fasteignalánamarkaðurinn á Íslandi hefur tekið miklum breytingum á þeim tæpu tveimur áratugum sem skýrsla þessi nær yfir. Ber þar fyrst að nefna breytingar á útlánakerfi Húsnæðisstofnunar ríkisins í árslok 1989, þegar farið var að gefa ú...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Rúnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/829
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Fasteignalánamarkaðurinn á Íslandi hefur tekið miklum breytingum á þeim tæpu tveimur áratugum sem skýrsla þessi nær yfir. Ber þar fyrst að nefna breytingar á útlánakerfi Húsnæðisstofnunar ríkisins í árslok 1989, þegar farið var að gefa út fasteignaveðbréf skiptanlegum fyrir húsbréf. Íbúðalánasjóður hóf síðan starfsemi í ársbyrjun 1999 og tók yfir starfsemi forvera síns Húsnæðisstofnunar ríkisins. Í júlí mánuði árið 2004 urðu svo aftur verulegar breytingar á útlánakerfi Íbúðalánasjóðs. Í stað útgáfu fasteignaverðbréfa skiptanlegum fyrir húsbréf fór sjóðurinn nú að lána fé til íbúðakaupa gegn útgáfu ÍLS-veðbréfa. Höfðu þessar breytingar í för með sér að nú var sá hluti kaupverðsins greiddur út í peningum, sem áður hafði verið greiddur með fasteignaveðbréfi. Stuttu seinna eða í ágústmánuði sama ár kynnti Kaupþing hf., fyrstur viðskiptabanka, fasteignalán á kjörum sem ekki höfðu sést áður, fylgdu aðrir viðskiptabankar fljótlega í kjölfarið. Viðskiptabankarnir buðu í upphafi lægri vexti, hærri lánsfjárhæðir og hærra veðsetningarhlutfall en áður hafði þekkst. Samspil þessara þátta gerði það að verkum að nú hafði eignaminna og tekjulægra fólk betri möguleika á að eignast þak yfir höfuðið, a.m.k. um sinn. Miklar hækkanir á fasteignaverði síðan hafa að einhverju leiti dregið úr þeim ávinningi sem hlaust m.a. af vaxtalækkunum. Lán viðskiptabankanna voru ekki bundin við fasteignakaup, þannig að nú áttu fleiri einstaklingar kost á hagstæðum lánakjörum, ekki eingöngu þeir sem stóðu í fasteignaviðskiptum. Í kjölfar innkomu viðskiptabankanna á fasteignalánamarkað hækkaði Íbúðalánsjóður hvorutveggja hámarkslán sín og veðsetningarhlutfall. Með innkomu viðskiptabankanna og hækkunum á veðsetningarhlutfalli og hámarkslánum Íbúðalánasjóðs, jókst framboð á fasteignalánum til muna og var eftirspurnin mikil. Viðbúið var að svo mikið fjármagnsflæði, á stuttum tíma, hefði einhverjar afleiðingar. Verð á fasteignum hækkaði mikið í öllum landshlutum. Vísitala íbúðarverðs rauk ...