Hvernig er að vera aldraður í samfélagi nútímans?

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðhorfið til þess að eldast er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Markmiðið er að fá skýrari mynd af því hvaða hugmyndir fólk gerir sér um efri árin. Það er farið í smiðju fræðimanna frá ýmsum tímum til að skoða hugmyndir þeirra um atrið...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Garðarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/796
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðhorfið til þess að eldast er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Markmiðið er að fá skýrari mynd af því hvaða hugmyndir fólk gerir sér um efri árin. Það er farið í smiðju fræðimanna frá ýmsum tímum til að skoða hugmyndir þeirra um atriði sem tengjast því hvernig viðhorf einstaklingsins þróast og þroskast með hækkandi aldri. Megin ásar umræðunnar eru: dygðir, virkni, virðing og að vera einhvers virði. Fjallað er um kenningar um öldrun í samhengi við lífshlaup og þroska einstaklinga. Kenningar um farsæla framvindu lífsins hafa nýverið litið dagsins ljós og með þeim er nýtt sjónarhorn á öldrun kynnt. Rýnt er í greinar í dagblöðum og tímaritum og síðan er farið á vettvang og tekin viðtöl við fólk sem komið er á efri ár. Gripið er nokkuð tilviljanakennt niður í skrif lærðra og leikra en reynt að forðast skrif með sjúkdóma, peningamál og stjórnmál að meginefni. Í viðtölum var lagt upp með hvað fólk hefði að segja um það að eldast og að vera kominn á efri ár og viðmælendum gefin lykilorðin: virðing, réttlæti og hamingja. Aldraðir í þjóðfélaginu eru skilgreindir út frá lífaldri, en bæði í greinum og orðræðu vísar hugtakið oftast til þeirra sem eru við lélega heilsu. Virðing er almennt talin dvínandi í samfélaginu og umfjöllun um réttlæti er oft tengd fjármálum. Hamingjuefni aldraðra eru önnur en þeirra sem yngri eru en ekkert bendir til að hamingja þeirra þurfi að vera minni en unga fólksins. Niðurstaðan úr umræðunum um það að vera gamall var í stórum dráttum sú að flestir leggja sama skilning í það að vera gamall og það að vera heilsulaus.