Verslun með matvæli á Internetinu : er markaður á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu?

Ritgerðin er lokuð Almenn netverslun hefur verið í mikilli þróun á síðasta áratug og virðast nú engin takmörk vera fyrir því sem hægt er að versla á Internetinu. Á undanförnum árum hefur verslun með matvæli á Internetinu náð gríðarlegum vinsældum erlendis, sér í lagi á Bretlandi og í Bandaríkjunum....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birna Sif Kristínardóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7608
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð Almenn netverslun hefur verið í mikilli þróun á síðasta áratug og virðast nú engin takmörk vera fyrir því sem hægt er að versla á Internetinu. Á undanförnum árum hefur verslun með matvæli á Internetinu náð gríðarlegum vinsældum erlendis, sér í lagi á Bretlandi og í Bandaríkjunum. Norðurlandaþjóðirnar hafa einnig fetað inn á þennan markað en netverslanir þar í landi hafa átt erfiðara með að ná sömu vinsældum og þekkist annars staðar. Á Íslandi er nú engin starfandi matvörunetverslun en Hagkaup setti slíka verslun á laggirnar upp úr síðustu aldamótum sem lifði stutt vegna of hás rekstrarkostnaðar sem skilaði sér í of háu vöruverði. Í verkefninu er rannsakað hvort markaður sé á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu. Við vinnslu verkefnisins var litið er til erlendra kannana og skýrslna sem fjalla um viðfangsefnið. Að gagnasöfnun lokinni var aflað frumheimilda með markaðsrannsókn sem lögð var fyrir á Internetinu í formi spurningalista. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íslenskir neytendur séu tilbúnir til að breyta kauphegðun sinni þegar kemur að því að versla í matinn og hvort tækifæri sé fyrir fyrirtæki að ráðast inn á þennan markað.