Breytingar á menntunarstigi vinnumarkaðarins á Húsavíkursvæðinu með tilkomu álvers á Bakka
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Með umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu að undanförnu um uppbyggingu álvera hafa komið fram tvær öndverðar skoðanir. Að störf í álverum séu hátæknistörf sem krefjist hás menntunarstigs, en hinsvegar að verið sé að taka gamaldags iðnað...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2007
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/736 |
Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Með umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu að undanförnu um uppbyggingu álvera hafa komið fram tvær öndverðar skoðanir. Að störf í álverum séu hátæknistörf sem krefjist hás menntunarstigs, en hinsvegar að verið sé að taka gamaldags iðnað fram yfir hátækniiðnað og sprotafyrirtæki með því að byggja álver á Íslandi. Í þessari rannsókn veða breytingar á menntunarstigi vinnumarkaðarins á Húsavíkursvæðinu skoðaðar ef fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík verði byggt. Skoðað verður menntunarstig vinnumarkaðarins eins og það er í dag, greint frá fyrirhugðu menntunarstigi starfa innan álvers og í afleiddum störfum sem áætlað er að muni fylgja álveri. Að lokum verður nýtt menntunarstig Húsavíkursvæðisins reiknað út frá fyrirliggjandi gögnum. |
---|