Menn, haf og hraun. Saga í list og minnismerkjum á Heimaey

Prentaðri útgáfu greinagerðarinnar fylgir ritið Menn, haf og hraun, sem varðveitt er í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þar er ásamt mynd og GPS-staðsetningu stuttlega rakin saga 61 verks í opinberu rými á Heimaey. Athygli vekur að af rúmlega 60 minnismerkjum og útilistaverkum á Heimaey er...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Hallbergsdóttir 1952-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Haf
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7321
Description
Summary:Prentaðri útgáfu greinagerðarinnar fylgir ritið Menn, haf og hraun, sem varðveitt er í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þar er ásamt mynd og GPS-staðsetningu stuttlega rakin saga 61 verks í opinberu rými á Heimaey. Athygli vekur að af rúmlega 60 minnismerkjum og útilistaverkum á Heimaey eru öll nema tvö frá því eftir gosið 1973. Fjallað er um hlutverk þeirra í sköpun ímyndar, gildi þeirra og merkingu og hvaða skilaboðum þeim er ætlað að flytja. Í greinagerð þessari er verkunum á Heimaey skipt í sex flokka eftir tilgangi þeirra eða áherslum: Tregablandnar minningar, Átök í lífi manna og náttúru, Hraun og menn, Höfnin - hjarta bæjarins, Mörkuð spor í sögunni og ,,Gleðin yfir að skapa -gleðin yfir að gefa". Áhrif ferðamanna á menningartengdri ferðaþjónustu hefur aukist á undanförnum árum. Bent er á leiðir hvernig nýta megi minnismerkin og listaverkin til að segja sögu Vestmannaeyja á áhugaverðan hátt og vekja um leið athygli á því sem bærinn hefur upp á að bjóða.