Summary: | Í verkefni þessu er skoðaður þróunarferill Stöðlakots í Þingholtunum sem áður var hjáleiga Reykjavíkur og notað til þess borgarformfræðikenning Conzen (1960) um þróunarferil borgarlóðar (e. the burgage cycle). Þróun byggðarinnar á svæðinu er skoðuð frá því að byggð myndast fram til dagsins í dag. Það er gert með því að skoða sögulegar heimildir, kort, myndir og teikningar en einnig með vettvangsskoðunum. Rýnt er í gömul kort af svæðinu ,frá mismunandi tímum og þau borin saman til að sjá hvernig byggðin breytist og þróast í gegnum tíðina. Búið er til sniðmát með teikningum, kortum og myndum til að greina þróun byggðarinnar og þær upplýsingar notaðar til að teikna þróunarferil lóðarinnar.
|